Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. júlí 2014 Utanríkisráðuneytið

Ráðstefna um nám og starfsþjálfun á vinnustöðum 

Norrænn vinnumarkaður stendur frammi fyrir mörgum sameiginlegum úrlausnarefnum í kjölfar efnahagskreppu og vegna afleiðinga lýðfræðilegra breytinga. Að sporna gegn atvinnuleysi ungs fólks og virkja þá sem hætt er við útilokun frá þátttöku á vinnumarkaði og í samfélaginu almennt er forgangsmál. 


Á ráðstefnunni verður sjónum beint að þróun menntakerfisins og möguleikum þess til að tengjast betur fyrirtækjum og stofnunum með það að leiðarljósi að ungt fólk og atvinnuleitendur fái tækifæri til þess að fá þjálfun þar sem hluta af námi sínu. Jafnframt verður athygli beint að möguleikum atvinnuleitenda til starfsþjálfunar innan fyrirtækja eða stofnana sem hluta af starfsleitaráætlunum sínum.

Skráning fer fram hér.
Dagskrá ráðstefnu.  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum