Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. júlí 2014 Forsætisráðuneytið

Jafnréttissjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

Jafnréttissjóður
Jafnréttissjóður

Starfræktur er sérstakur rannsóknarsjóður, Jafnréttissjóður. Tilgangur hans er að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis. 

Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði. Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða veittir styrkir til rannsókna sem tengjast jafnréttismálum. 

Gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi 9,8 milljónir króna til ráðstöfunar fyrir hvert starfsár og að styrkir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm. 

Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið. 

Vakin er athygli á því að umsækjendum er gert að sækja rafrænt um á eyðublaðavef ráðuneytanna, minarsidur.stjr.is (sjá leiðbeiningar). Nánari upplýsingar má finna hér á vef ráðuneytisins. 

Umsóknarfrestur er til 25. ágúst 2014 og verður úthlutað úr sjóðnum á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október 2014. Jafnréttissjóður starfar samkvæmt reglum nr. 513/2006, um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum