Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. júlí 2014 Utanríkisráðuneytið

Landgræðsla verði hluti nýrra þróunarmarkmiða SÞ

Gunnar Bragi heilsar fastafulltrúa Grænhöfðaeyja, Fernando Jorge Wahnon Ferreira

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra stóð í dag fyrir morgunverðarfundi hóps 23 ríkja sem Ísland og Namibía stofnuðu á síðasta ári um landgræðslumál hjá Sameinuðu þjóðunum.

„Það er mikilvægt að landgræðslumál fái aukinn sess í þróunarstarfi til þess að koma í veg fyrir afleidd vandamál á borð við matvælaskort, meiriháttar fólksflutninga og átök sem geta orðið vegna landeyðingar og þurrka. Þess vegna leggur Ísland ríka áherslu á að markmið í landgræðslumálum verði meðal nýrra þróunarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna,“ sagði Gunnar Bragi á fundinum í morgun.

„Landgræðslumálin eru ekki síst áhugaverð vegna þess að þau leiða saman ólíkar þjóðir, með ólíka reynslu og stöðu mála. Ísland hefur tekist á við landeyðingu í áratugi og hefur því tækifæri til þess að miðla af reynslu sinni.”

Utanríkisráðherra ræddi landgræðslu einnig á ráðherrafundi SÞ um sjálfbæra þróun og hin nýju þróunarmarkmið stofnunarinnar. Talaði hann um reynslu Íslands af landeyðingu og hvernig unnið hefur verið að því að ná jafnvægi milli endurheimt landgæða og landeyðingar með landgræðslu. Hún væri tvímælalaust öflugt vopn í baráttunni gegn hungursneyð, fyrir bættri næringu íbúa heimsins og stuðlaði að sjálfbærri nýtingu lands. Án sjálfbærrar landnýtingar yrði ekki mögulegt að fæða níu milljarða manna árið 2050,  berjast gegn fátækt og hlýnun jarðar ásamt því að vernda fjölbreytileika náttúrunnar.

Hluti af ráðherrafundinum fjallaði um mikilvægi fjölþjóðlegrar samvinnu.  Þar benti utanríkisráðherra á góða reynslu af samstarfi Íslands og Háskóla Sameinuðu þjóðanna um starfsemi skólanna fjögurra sem staðsettir eru á Íslandi, á sviði jarðvarma, sjávarútvegs, landgræðslu og jafnréttismála.

Meðan á ráðherrafundi SÞ stóð átti Gunnar Bragi einnig tvíhliða fundi um jarðhitamál með háttsettum embættismönnum frá Þýskalandi og Nýja Sjálandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum