Hoppa yfir valmynd

Frétt

25. ágúst 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðherra kynnir sér viðbúnað Veðurstofu Íslands

Fylgst með jarðhræringum í rauntíma.

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti sér viðbúnað á Veðurstofu Íslands í dag vegna jarðhræringa í Bárðabungu og við Dyngjujökul. Fékk hann ítarlegt yfirlit yfir jarðskjálftavirknina undanfarna daga ásamt því að kynna sér spár um hugsanleg flóð, eldsumbrot og öskufall, ef til eldgoss skyldi koma.

Veðurstofa Íslands, sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið, hefur víðtæku eftirlits- og spáhlutverki að gegna varðandi náttúru Íslands. Þar er starfandi öflugt teymi sérfræðinga á sviði jarðvísinda, vatnavár og veðurfræði sem hafa stöðugan aðgang að nýjustu upplýsingum er varða jarðhræringarnar í norðanverðum Vatnajökli. Má þar nefna vöktun náttúrunnar með jarðskjálftamælum, GPS-stöðvum, ratsjám og vatnamælum auk hefðbundinna veðurmælitækja. Að auki fær Veðurstofan veðurfarsgögn frá viðurkenndum stofnunum erlendis sem eru mikilvæg við gerð veður- og öskufallsspáa komi til eldgos. Mælingar og spár Veðurstofu eru grunnur ákvarðana sem teknar eru til að tryggja öryggi almennings, s.s. varðandi lokanir svæða og flugöryggi.

"" Við yfirlitskort af flughelginni Árni Snorrason, veðurstofustjóri, sýnir Sigurði Inga Jóhannssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra og Sigríði Auði Arnardóttur, ráðuneytisstjóra, það flugsvæði sem var lokað um tíma um helgina..

Í heimsókninni í dag kynntu Árni Snorrason, veðurstofustjóri, Kristín Jónsdóttir, fagstjóri jarðvár, Matthew Roberts, verkefnisstjóri vatnaváreftirlits og Theodór Hervarsson, framkvæmdastjóri eftirlits- og spásviðs, ráðherra verkefni stofnunarinnar undanfarna daga, þróun jarðhræringanna, spálíkön, tækjakost og aðbúnað starfsfólk svo fátt eitt sé nefnt. Þá skoðaði ráðherra vaktarsvæði stofnunarinnar þar sem eftirliti með jarðhræringum og veðurfari er sinnt.


"" Með sérfræðingum Veðurstofu Kristín Jónsdóttir, fagstjóri jarðvár útskýrir jarðhræringarnar síðustu daga..


 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum