Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. september 2014 Forsætisráðuneytið

Breytingar í forsætisráðuneytinu

Ákveðið hefur verið að Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður forsætisráðherra, muni fyrst um sinn jafnframt gegna embætti aðstoðarmanns dómsmálaráðherra og hafa aðstöðu í innanríkisráðuneytinu frá og með deginum í dag, 1. september.  

Í dag hefur jafnframt störf í forsætisráðuneytinu Lilja D. Alfreðsdóttur, aðstoðarframkvæmdastjóri á skrifstofu bankastjóra og alþjóðasamskipta í Seðlabanka Íslands, sem hefur verið ráðin tímabundið sem verkefnisstjóri í forsætisráðuneytinu.  Lilja kemur til starfa á grundvelli tímabundins vistaskiptasamnings við Seðlabanka Íslands og verður Lilja í leyfi frá bankanum á meðan samningurinn varir.

Lilja D. Alfreðsdóttir hefur unnið í Seðlabanka Íslands frá árinu 2001 og starfað sem aðstoðarframkvæmdastjóri frá 2005. Einnig starfaði hún hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington DC frá 2010-2012. Lilja D. Alfreðsdóttir er með meistaragráðu frá Columbia University í alþjóðahagfræði og BA gráðu stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum