Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. september 2014 Utanríkisráðuneytið

Öryggishorfur í Evrópu ræddar á fundi ráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja

Ráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra tók þátt í fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Tallinn í dag. 

Öryggishorfur í Evrópu var helsta umfjöllunarefni fundarins. Utanríkisráðherra segir brýnt að hvergi verði kvikað frá þeim grundvallargildum sem eru leiðarljós í utanríkisstefnu ríkjanna, virðingu fyrir alþjóðalögum, lýðræði, mannréttindum og réttarríkinu. Hann segir mikla samstöðu ríkja í hópi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna og sem fyrr valdi framferði Rússlands í Úkraínu áhyggjum.  

„Rússnesk stjórnvöld hafa með inngripi í málefni Úkraínu skapað ótryggt ástand í Evrópu. Alþjóðalög hafa verið þverbrotin með ólöglegri innlimun Krímskaga í Rússland og stefna Rússlands grefur undan stöðugleika í allri álfunni. Eystrasaltsríkin eiga til dæmis öll landamæri að Rússlandi og vilja eiga í vinsamlegum samskiptum við þarlend stjórnvöld en þeim er verulega órótt vegna stöðunnar sem nú er uppi. Við stöndum þétt að baki grönnum okkar í Eistlandi, Lettlandi og Litháen og krefjumst þess að fullveldi þeirra sé ávallt að fullu virt," segir Gunnar Bragi.   

Ráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna lýsa þungum áhyggjum af fangelsun eistnesks lögreglumanns sem var numinn á brott af rússneskum öryggissveitum innan landamæra Eistlands 5. september síðastliðinn. Í sameiginlegri yfirlýsingu ráðherranna eru rússnesk stjórnvöld hvött til þess að leysa lögreglumanninn þegar í stað úr haldi og tryggja að hann snúi heilu og höldnu heim til Eistlands.      

Ánægja er með niðurstöðu leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var í Wales í síðustu viku þar sem samstaða bandalagsríkja var áréttuð með skýrum hætti, viðbragðsáætlanir bandalagsins efldar og ákvarðanir teknar um aukna viðveru í austanverðri Evrópu. Mikilvægi samstarfsríkja sem standa utan Atlantshafsbandalagsins var jafnframt undirstrikuð á leiðtogafundinum. Þar staðfestu Finnland og Svíþjóð áframhaldandi náið samstarf við bandalagið sem styrkir enn frekar tengsl Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á sviði öryggis- og varnarmála. 

Ráðherrarnir ræddu uppgang ISIL hryðjuverkasamstakanna, þá ógn sem af þeim steðjar og með hvaða hætti alþjóðasamfélagið getur brugðist við þeim hroðaverkum sem samtökin hafa framkvæmt. Þá var rætt um orkumál í Evrópu, hvernig auka megi þátt endurnýjanlegra orkugjafa, tryggja betur orkuöryggi álfunnir og styrkja innviði sem stuðla að skilvirkari orkumarkaði.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum