Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. september 2014 Dómsmálaráðuneytið

Lög um frestun á nauðungarsölum hafa tekið gildi

Lög um að nauðungarsölum verði frestað áfram á meðan vinnsla umsókna um höfuðstólslækkun húsnæðislána stendur yfir hafa tekið gildi. Með lögunum er sýslumönnum veitt heimild til að fresta nauðungarsölum fram yfir 1. mars 2015.

Lögin heimila gerðarþola, án samþykkis gerðarbeiðanda, að óska eftir fresti á því að framhald uppboðs verði ákveðið eða að það fari fram. Jafnframt er, með samþykki allra gerðarbeiðenda, unnt að fresta uppgjöri til kröfuhafa á fasteign sem seld hefur verið við framhald uppboðs en er enn í svokölluðum samþykkisfresti. Fresturinn mun hins vegar ekki taka til fyrstu skrefa nauðungarsölu þannig að þingfesting máls og byrjun uppboðs munu fara fram nema gerðarbeiðandi fresti aðgerðum.

Skilyrði fyrir því að unnt sé að óska eftir fresti er að um sé að ræða húsnæði sem ætlað er til búsetu samkvæmt ákvörðun skipulags- og byggingaryfirvalda, að gerðarþoli haldi þar heimili og hafi skráð lögheimili. Einnig skal gerðarþoli leggja fram staðfestingu á að hann hafi sótt um leiðréttingu samkvæmt ákvæðum laga um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána.

Sjá einnig:

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum