Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. september 2014 Dómsmálaráðuneytið

Reglugerð um flýtimeðferð hælisumsókna gefin út

Innanríkisráðherra hefur skrifað undir reglugerð um hvaða skilyrði geta verið fyrir sérstakri málsmeðferð umsækjenda um hæli hér á landi, svokallaða flýtimeðferð. Í flýtimeðferð felst að ekki er talin þörf á fullri efnismeðferð umsóknar um hæli, afgreiðslu umsóknar er forgangsraðað á undan öðrum umsóknum og/eða frestir í málsmeðferðinni eru styttri en þegar mál hljóta fulla efnismeðferð, svo sem vegna gagnaöflunar.

Nokkur skilyrði eru tilgreind í reglugerðinni fyrir því að mál geti sætt flýtimeðferð. Þau eru meðal annarra þessi og eru þau útskýrð nánar í 3. til 8. grein reglugerðarinnar:

  • Þegar líkur eru á samþykki umsóknar.
  • Þegar sérstakar ástæður er varða umsækjanda mæla með því.
  • Þegar umsókn um hæli er bersýnilega tilhæfulaus.
  • Þegar umsækjandi um hæli gefur ófullkomnar eða misvísandi upplýsingar
    eða þegar þær upplýsingar gefa ekki tilefni til að ætla
    að ákvæði 44. gr. útlendingalaga eigi við.
  • Þegar um endurtekna umsókn er að ræða eftir synjun hælisumsóknar
    eða þegar umsókn hefur verið dregin til baka.
  • Þegar víst má telja að umsókn um hæli sé lögð fram
    í því skyni að tefja framkvæ
    md ákvörðunar um brottvísun.

Reglugerðin er sett með heimild í 4. mgr. 50. gr. d í lögum um útlendinga, nr. 96/2002, með síðari breytingum. Hún hefur verið birt í Stjórnartíðindum og öðlast þegar gildi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum