Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. október 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Ólíkar aðstæður karla og kvenna á hjúkrunarheimilum

Á dvalarheimili
Á öldrunarheimili

Margvíslegur munur er á högum og aðstæðum karla og kvenna á hjúkrunarheimilum, hvort sem í hlut eiga íbúar eða starfsfólk. Fjárhagslega bera konur að jafnaði minna úr býtum, hvort sem litið er til launa eða lífeyris. Þetta kemur fram í lokaskýrslu velferðarráðuneytisins um kynjaða hagstjórn sem fjallar um hjúkrunarheimili.

Í samræmi við þriggja ára áætlun frá árinu 2011 um innleiðingu kynjaðrar hagstjórnar við fjárlagagerð var öllum ráðuneytum falið að velja sér tiltekinn málaflokk og vinna með hann samkvæmt aðferðafræði kynjaðrar hagstjórnar. Velferðarráðuneytið valdi málefni aldraðra og afmarkaði verkefnið við aldraða á hjúkrunarheimilum. Heildarfjárframlög til hjúkrunarheimila á fjárlögum ársins 2014 eru um 23 milljarðar króna og þar af renna um 18,8 milljarðar til þeirra hjúkrunarheimila sem verkefni ráðuneytisins tekur til.

Í skýrslunni er dreginn fram ýmis lýðfræðilegur kynjamunur en einnig bent á mun sem tengist starfsvali, atvinnuþátttöku og launum kynjanna. Fram kemur að konurnar bera að jafnaði minna úr býtum fjárhagslega en karlarnir og eins benda skýrsluhöfundar á að umönnun aldraðra sem aðstandendur sinna lendi frekar á konum. Því megi því segja að ákveðið misvægi fylgi kynjunum alla tíð, frá upphafi til æviloka.

Ýmsar ákvarðanir stjórnvalda geta haft áhrif til þess að draga úr kynjamun, til dæmis hvað varðar eftirlaun og greiðsluþátttöku íbúa á hjúkrunarheimilum. Í skýrslunni er settar fram tillögur um aðgerðir til að draga úr misrétti í samræmi við niðurstöður verkefnisins. Meðal annars er lagt til að stefna í málefnum aldraðra verði endurskoðuð þannig að kynjasjónarmið verði hluti af henni og að sett verði skilyrði í þjónustusamninga við hjúkrunarheimili um að þau setji sér jafnréttisáætlanir.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum