Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. október 2014 Forsætisráðuneytið

Alþjóðleg ráðstefna um jafnréttismál á norðurslóðum

Utanríkisráðuneytið, Jafnréttisstofa, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Norðurslóðanet Íslands bjóða til alþjóðlegrar ráðstefnu um jafnréttismál á norðurslóðum á Akureyri dagana 30.-31. október næstkomandi.

Á ráðstefnunni verða aðstæður kvenna og karla á norðurheimskautssvæðinu skoðaðar í víðum skilningi og athyglinni m.a. beint að aðgangi og yfirráðum auðlinda, þátttöku kynjanna í ákvarðanatöku og stjórnmálum, byggðaþróun, öryggi og almennri velferð. Tilgangurinn er að stuðla að víðtækri, markvissri samræðu um jafnréttismál samtímans og beina um leið sjónum að áskorunum sem framtíðin kann að bera í skauti sér m.t.t. þeirra loftslags- og umhverfisbreytinga sem eru að verða og í samhengi við efnahags- og félagslega þróun ríkja og samfélaga á norðurslóðum.

Ráðstefnan fer fram í Menningarhúsinu Hofi. Allar nánari upplýsingar;  dagskrá, fyrirlesara ofl. má finna á vefsíðu ráðstefnunnar 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum