Framlag til jafnréttis kynjanna heima og heiman
Forsætisráðherra flutti í dag, á kvennafrídeginum og degi Sameinuðu þjóðanna, ávarp við árlegt málþing Jafnréttissjóðs og afhenti af því tilefni fjóra styrki til rannsóknarverkefna á sviði jafnréttismála samtals að upphæð 8,6 mkr. Í ávarpi hans kom fram að við stofnun Jafnréttissjóðs á þrjátíu ára afmæli kvennafrídagsins 2005 hafi sjóðurinn verið kynntur sem gjöf til jafnréttis- og kvennahreyfingarinnar í landinu og þakklætisvottur fyrir það afl, frumkvæði og nýsköpun sem í henni hefur falist til framfara, mannréttinda og almennrar velsældar í samfélagi okkar. Forsætisráðherra vék m.a. að fyrirhugaðri karlaráðstefnu sem Ísland og Surinam hyggjast standa fyrir í New York á næsta ári og kvað hann tíðindin sem felast í þeirri ráðstefnu fyrst og fremst vera þau að þar verða karlar kallaðir til umræðu um kynbundið ofbeldi.
Styrkina hlutu:
- Björg Hjartardóttir, doktorsnemi við University of British Columbia í Kanada til rannsóknar á Vestur-íslenska kvenréttindablaðinu Freyja,
- Guðný Björk Eydal prófessor og Ingólfur V. Gíslason dósent við Háskóla Íslands til rannsóknarinnar Jafn réttur til fæðingarorlofs: Hvernig haga pólskir og íslenskir foreldrar atvinnuþátttöku og umönnun barna sinna?
- Guðný Gústafsdóttir doktorsnemi við Háskóla Íslands til rannsóknar á mótsögnum kvenleikans, kyngervi og þegnrétti á Íslandi,
- Marta Einarsdóttir sérfræðingur við Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri til rannsóknar á íslensku ofurfjölskyldunni – samræmingu fjölskyldu og atvinnulífs.
Í mörgum tilvikum vinna nemar og aðrir samstarfsmenn að rannsóknum með styrkþegum.
Kynningar
Á málþingi Jafnréttissjóðs var gerð grein fyrir rannsóknum sem sjóðurinn styrkti á liðnu ári.
- Verkaskipting Íslendinga 2013 - Þóra Kristín Þórsdóttir,KolbeinnStefánsson og Stefán Ólafsson
- Karlavæðing kvennabaráttunnar? Um karla í jafnréttisbaráttu - Arnar Gíslason og Þorgerður Einarsdóttir
- Viðhorf unglinga til jafnréttis og verkaskiptingar kynjanna 1992-2014 - Andra Hjálmsdóttir
- Frá langskólamenntun til launamunar - Kynbundinn launamunur háskólamenntaðra ári eftir útskrift - Andrea G. Dofradóttir Guðbjörg Andrea Jónsdóttir og Helgi Guðmundsson