Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. október 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Líffæragjafar skrái vilja sinn í nýjan gagnagrunn

Ráðherra skráir sig í grunninn undir vökulu auga verkefnisstjóra rafrænnar sjúkraskrár hjá Embætti landlæknis
Ráðherra skráir sig í grunninn undir vökulu auga verkefnisstjóra rafrænnar sjúkraskrár hjá Embætti landlæknis

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra var fyrstur til að skrá sig í miðlægan grunn um líffæragjafa þegar hann opnaði formlega í dag sérstakt vefsvæði sem Embætti landlæknis hefur sett á fót í þessu skyni. Fólk er hvatt til að taka afstöðu og lýsa vilja sínum í þessum efnum.

Fram til þessa hefur fólk sem er reiðubúið að gefa líffæri ef á reynir þurft að fylla út sérstakt líffæragjafakort og ganga með það á sér. Að öðru leyti hafa upplýsingar um líffæragjafa hvergi verið skráðar og engar tölulegar upplýsingar eru til hér á landi um fjölda þeirra.

Vefsvæðið má nálgast gegnum hnapp á vef Embættis landlæknis, www.landlaeknir.is.Þar eru margvíslegar upplýsingar sem tengjast líffæragjöf, settar fram á aðgengilegan hátt sem spurningar og svör. Til að lýsa afstöðu sinni til líffæragjafar þarf fólk að opna sérstakt svæði á vefnum og auðkenna sig með Íslykli eða rafrænu skilríki.

Við skráningu í grunninn getur fólk merkt við;

  • Líffæragjöf sem nær til allra líffæra.
  • Líffæragjöf sem takmarkast við ákveðin líffæri.
  • Að heimila ekki líffæragjöf.

Notandinn heimilar Embætti landlæknis að vista upplýsingar um afstöðu sína til líffæragjafar í miðlægum gagnagrunni og miðla þeim til heilbrigðisstarfsmanna sem hlut eiga að máli.

Ef fólk skiptir um skoðun getur það alltaf breytt vali sínu á þessu sama vefsvæði.

Vefsvæðið með skráningargrunninum markar tímamót þar sem það auðveldar þeim sem þess óska að skrá vilja sinn á einfaldan hátt í rafrænan miðlægan gagnagrunn.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra sagði við opnun vefsvæðisins í dag að með því opnaðist mikilvægt tækifæri fyrir fólk til þess að gera upp hug sinn í næði og skrá vilja sinn, hver sem hann væri, á öruggan stað. „Með því móti getur fólk létt erfiðri ákvörðun af ástvinum sínum ef á reynir.“

Geir Gunnlaugsson landlæknir segir reynslu annarra þjóða sýna að fjölþættar aðgerðir séu nauðsynlegar til að fjölga líffæragjöfum. Miklu skipti að veita markvissa fræðslu og upplýsingagjöf til almennings og eins sé mikilvæg fræðsla og þjálfun fyrir heilbrigðisstarfsfólk, meðal annars til að ræða við aðstandendur um líffæragjöf. „Eins er ég viss um að þessi nýi vefur sem gerir fólki svona auðvelt að skrá vilja sinn muni hafa mikil áhrif.“

Heilbrigðisráðherra skipaði í dag nefnd sem falið er að fjalla um líffæragjafir og leiðir til að fjölga þeim. Formaður nefndarinnar er Silja Dögg Gunnarsdóttir.

Frá opnun vefsins hjá Embætti landlæknis


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum