Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. nóvember 2014 Forsætisráðuneytið

17. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Þjóðaratkvæðagreiðslur á grundvelli undirskrifta
  3. Framsal valdheimilda í þágu alþjóðasamvinnu
  4. Auðlindir
  5. Umhverfisvernd

Fundargerð

17. fundur – haldinn föstudaginn 14. nóvember 2014, kl. 10.00, í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir og Valgerður Bjarnadóttir. Valgerður Gunnarsdóttir hafði boðað forföll. 

Páll Valur Björnsson hefur fengið lausn frá skipun í stjórnarskrárnefnd og Róbert Marshall sótti fundinn af hálfu Bjartrar framtíðar.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

Formaður setti fundinn og stýrði honum. 

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 16. fundar, sem haldinn var föstudaginn 7. nóvember 2014, var send nefndarmönnum með tölvupósti 7. nóvember. Fundargerðin var samþykkt án athugasemda. 

2. Þjóðaratkvæðagreiðslur á grundvelli undirskrifta

Rætt var um útvíkkun heimilda til þjóðaratkvæðagreiðslu, sbr. umfjöllun í fyrstu áfangaskýrslu, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á. Unnið verður úr umræðum fundarins og drög send nefndarmönnum.

3. Framsal valdheimilda í þágu alþjóðasamvinnu

Samþykkt að fjalla fyrst um dagskrárlið 4 (Auðlindir) og umfjöllun því frestað um dagskrárlið 3.

4. Auðlindir

Rætt var um auðlindir og þjóðareign, sbr. umfjöllun í fyrstu áfangaskýrslu, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á. Unnið verður úr umræðum fundarins og drög send nefndarmönnum.

5. Umhverfisvernd

Umfjöllun frestað.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.30. 

SG skrifaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum