Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. nóvember 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Frumathugun á samlegð stofnana á sviði rannsókna og vöktunar

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur sett af stað vinnu við frumathugun á sameiningu nokkurra stofnana ráðuneytisins eða samþættingu verkefna sem undir þær heyra. Stofnanirnar sem um ræðir eru Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn, Umhverfisstofnun vegna verkefna á sviði vöktunar og Veðurstofa Íslands. Þá verða jafnframt skoðaðir mögulegir samstarfsfletir við Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði.

Tilgangur verkefnisins er m.a. að meta þarfir, skilgreina markmið og framtíðarsýn og leiða í ljós hvort sameining stofnana eða samþætting verkefna sé góður kostur. Fyrir liggja skýrslur um stofnanauppbyggingu ráðuneytisins frá  2009 og 2010 auk þess sem ráðuneytið, í samstarfi við stofnanir þess, hefur frá 2013 unnið ítalega greiningu á verkefnum stofnananna. 

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á samhæfingu rekstrarumhverfis ríkisstofnana sem stunda rannsóknir og þróun, til að tryggja að fjárveitingar til rannsókna og þróunarstarfs nýtist sem best. Verkefnið er í anda tillagna hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar sem fela m.a. í sér að bæta hagkvæmni og árangur í ríkisrekstri, að rekstur ríkisins verði gerður skilvirkari og framleiðni aukin. 

Stýrihópur umhverfis- og auðlindaráðuneytis og viðkomandi stofnana hefur yfirumsjón með verkefninu. Gert er ráð fyrir að stýrihópurinn skili skýrslu og tillögum fyrir 1. mars á næsta ári. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum