Hoppa yfir valmynd

Frétt

3. desember 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Vinna hafin við frumvarp að lögum um skógrækt

skogur
Birkiskógur

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið að hefja vinnu við heildarendurskoðun laga um skógrækt, sem eru frá árinu 1955.

Gert er ráð fyrir að við gerð frumvarpsins verði m.a. byggt á vinnu nefndar um endurskoðun laga um skógrækt, sem skilaði greinargerð í júní 2012. Í greinargerð sinni lagði nefndin áherslu á tiltekna meginþætti, s.s. aukna útbreiðslu skóga og uppbyggingu skógarauðlindar, þróun skógarnytja til verðmætasköpunar, nýsköpun og byggðaþróun, aðgengi fólks að skógum og jákvæð áhrif þeirra á umhverfi mannsins og lýðheilsu. Sömuleiðis er áhersla lögð á  vistkerfisþjónustu skóga, þ.m.t. fyrir jarðvegsvernd, vatnsvernd og líffræðilega fjölbreytni, og þátt skógræktar í að stemma stigu við hnattrænum loftslagsbreytingum og aðlögun skóga að þeim. Nefndin taldi vernd þeirra skóga sem fyrir eru, ræktun nýrra skóga, endurheimt skógarvistkerfa og öflugt rannsókna- og þróunarstarf í þágu skógræktar vera forsendur fyrir árangri á ofantöldum sviðum.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið mun njóta aðstoðar samráðsvettvangs við gerð frumvarpsins. Hann verður skipaður tveimur fulltrúum fyrri nefndar, og fulltrúum Bændasamtaka Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landverndar. Hlutverk vettvangsins er að vera ráðuneytinu til ráðgjafar um innihald og uppbyggingu nýs frumvarps, m.a. á grunni fyrirliggjandi vinnu.

Miðað er við að frumvarp til nýrra laga um skógrækt verði lagt fram á haustþingi 2015.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum