Hoppa yfir valmynd

Frétt

28. desember 2014 Utanríkisráðuneytið

Mannúðaraðstoð vegna átakanna í Sýrlandi og ebólufaraldurs

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 32 milljónum kr. til mannúðaraðstoðar. Framlögin renna til Matvælaáætlunar SÞ, WFP, vegna mataraðstoðar við flóttamenn frá Sýrlandi og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF,  til baráttunnar gegn ebólufaraldrinum í Vestur-Afríku.

Gunnar Bragi segir að mikil þörf sé fyrir mataraðstoð til sýrlenskra flóttamanna. Þeir eru nú yfir þrjár milljónir og fjöldinn eykst enn vegna áframhaldandi átaka og árása hryðjuverkasamtaka ISIS. Í byrjun desember tilkynnti Matvælaáætlun SÞ að stofnunin hefði þurft að hætta mataraðstoð til 1.7 milljóna flóttamanna á svæðinu þar sem sjóðir væru uppurnir. Í kjölfar sérstaks ákalls til ríkja heims gat stofnunin hafið mataraðstoð að nýju 9. desember sl. Þeir sjóðir sem safnast hafa duga þó einungis fram í janúar næstkomandi og því er brýn þörf á frekari aðstoð.

Þá er einnig brýn þörf fyrir aðstoð í Vestur-Afríku þar sem ebóla hefur breiðst út, en börn eru sérstaklega í mikilli hættu á að sýkjast. Fjöldi barna á um sárt að binda vegna faraldursins, sem hefur gert þúsundir barna munaðarlaus. Með framlaginu til UNICEF er brugðist við neyðarkalli stofnunarinnar til að berjast gegn faraldrinum og afleiðingum hans.

Þegar hafa verið veittar 37 milljónir kr. á árinu til baráttunnar gegn ebólufaraldrinum og 33 milljónir kr. vegna ástandsins í Sýrlandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum