Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. desember 2014 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórnin veitir styrk vegna kynningar á íslenskri tónlist í Hollandi

ÚTÓN
ÚTÓN

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita Útón, útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, 12 milljóna kr. fjárstyrk af ráðstöfunarfé sínu til að mæta kostnaði vegna þátttöku Íslands á Eurosonic-tónlistarhátíðinni í janúar næstkomandi.

Gróska íslensks tónlistarlífs hefur verið mikil á undanförnum árum og hefur hún vakið verðskuldaða athygli erlendis. Um miðjan janúar nk. verður Eurosonic-tónlistarhátíðin haldin í Hollandi, sem er stærsta slík hátíð sem haldin er í Evrópu, og verður Ísland í öndvegi á hátíðinni. Í samræmi við það taka óvenju margar íslenskar hljómsveitir og listamenn, alls 19 talsins, þátt í hátíðinni að þessu sinni fyrir milligöngu Útón, útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar. Sérstök umfjöllun verður um íslenska tónlist á hátíðinni m.a. með sérstökum viðburðum og pallborðum.

Umtalsverður kostnaður fylgir svo umfangsmikilli þátttöku af hálfu Íslands á tónlistarhátíðinni. Mikilvægt er að styðja við þennan stóra vaxtarsprota íslenskrar menningar og því ákvað ríkisstjórnin að veita sérstakan fjárstyrk til verkefnisins af ráðstöfunarfé sínu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum