Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. janúar 2015 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Ráðstefna um líf- og heilbrigðisvísindi

Nýlega var haldin 17. ráðstefnan um líf- og heilbrigðisvísindi á vegum Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.  Fjórar ungar vísindakonur voru verðlaunaðar fyrir rannsóknarverkefni sín

Ráðstefna Heilbrigðisvísindasviðs HÍ 2015
Ráðstefna Heilbrigðisvísindasviðs HÍ 2015

Á dagskrá voru 160 erindi í 40 málstofum og 122 veggspjaldakynningar um öll fræðasvið líf- og heilbrigðisvísinda; frá rannsóknum á dýrum og frumum til lífsgæða og velferðar á ólíkum æviskeiðum. Sérstök áhersla var lögð á að málstofur væru þverfræðilegar til að tengja saman vísindafólk úr mismunandi áttum.   

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra ávarpi ráðstefnugesti og tók þátt í verðlaunaafhendingu þegar fjórar ungar vísindakonur voru verðlaunaðar fyrir rannsóknarverkefni sín.

Ellen Alma Tryggvadóttir, M.Sc. í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild, hlaut verðlaun velferðarráðuneytisins, til ungs og efnilegs vísindamanns fyrir verkefni á sviði forvarna eða heilsueflingar, fyrir verkefnið „Fæðuval íslenskra kvenna á meðgöngu og tengsl við meðgöngusykursýki“. Anna Lilja Gunnarsdóttir, ráðuneytisstjóri velferðarráðuneytisins, flutti ávarp og afhenti verðlaunin.

Heiða María Sigurðardóttir, nýdoktor við Sálfræðideild, hlaut verðlaun mennta- og menningarmálaráðuneytisins, til ungs og efnilegs vísindamanns. Á ráðstefnunni flutti hún erindið „Röskun á sjónrænum hluta- og andlitskennslum í lesblindu: Skert starfsemi kviðlægs sjónstraums?“. Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra flutti ávarp og afhenti verðlaunin.

Eydís Einarsdóttir, doktorsnemi við Lyfjafræðideild, hlaut verðlaun úr Þorkelssjóði, til ungs námsmanns fyrir verkefni á sviði lyfja- og eiturefnafræði, fyrir verkefnið „Nýjar N-acil-dópamín afleiður úr svampdýrinu Myxilla incrustans sem var á Strýtunum í Eyjafirði“. Magnús Karl Magnússon, prófessor og deildarforseti Læknadeildar og formaður valnefndar, flutti ávarp og Kristín Ólafsdóttir, dósent við Læknadeild, afhenti verðlaunin.

Ólöf Birna Ólafsdóttir, doktorsnemi við Læknadeild, hlaut hvatningarverðlaun Jóhanns Axelssonar, sem veitt eru af Félagi íslenskra lífeðlisfræðinga, til ungs og efnilegs vísindamanns fyrir verkefni á sviði lífeðlisfræði eða skyldra greina, fyrir verkefnið „Súrefnismettun sjónhimnuæða við innöndun 100% O2 í heilbrigðum einstaklingum og glákusjúklingum“. Sighvatur Sævar Árnason, dósent við Læknadeild, flutti ávarp og afhenti verðlaunin.

Verðlaunahafar á ráðstefnu Heilbrigðisvísindasviðs HÍ 2015:Verðlaunahafar á ráðstefnu Heilbrigðisvísindasviðs HÍ 2015

 

 

 

 

 

 

 

Ólöf Birna Ólafsdóttir, Heiða María Sigurðardóttir, Ellen Alma Tryggvadóttir og Eydís Einarsdóttir.

Á efri myndinni eru: Frá vinstri: Fanney Þórsdóttir, formaður ráðstefnunefndar, Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Sighvatur Sævar Árnason, dósent við Læknadeild, Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra, Ólöf Birna Ólafsdóttir, Heiða María Sigurðardóttir, Ellen Alma Tryggvadóttir, Eydís Einarsdóttir, Anna Lilja Gunnarsdóttir, ráðuneytisstjóri velferðarráðuneytisins, Magnús Karl Magnússon, prófessor og deildarforseti Læknadeildar, Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, og Inga Þórsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs.

Myndirnar tók Björn Gíslason



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum