Hoppa yfir valmynd

Frétt

8. janúar 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-nóvember 2014

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu 11 mánuði ársins 2014 liggur nú fyrir en í aðalatriðum gefur það upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Nokkur munur er á greiðsluuppgjöri annars vegar og uppgjöri á rekstrargrunni eins og Ríkisreikningur er gerður eftir hins vegar. Hann felst einkum í því að í greiðsluuppgjöri er ekki tekið tillit til ýmissa fjárskuldbindinga og krafna sem áfallnar eru á árinu bæði á tekju- og gjaldahlið sem hafa ekki haft áhrif á greiðslur úr ríkissjóði. 


Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 44,6 ma.kr. en var neikvætt um 26,3 ma.kr. á sama tímabili árið 2013. Innheimtar tekjur hækkuðu um 87,2,8 ma.kr. milli ára en greidd gjöld jukust um 21,5 ma.kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum