Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. febrúar 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Mælt fyrir frumvarpi um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum

Sina

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur mælti á Alþingi fyrir frumvarpi til laga um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum.

Frumvarpið fjallar um sinubrennur og bálkesti og um meðferð elds utan dyra, þar á meðal ýmsar varúðarráðstafanir vegna hættu á gróðureldum. Fjallað er um skyldu hvers og eins til að gæta ýtrustu varkárni í meðferð elds. Sérstaklega er fjallað um sinubrennur og tiltekið að þær séu eingöngu heimilar á lögbýlum þar sem stundaður er landbúnaður og einungis í rökstuddum tilgangi í jarðrækt eða búfjárrækt.

Í frumvarpinu eru ákvæði um meðferð elds á víðavangi, leyfisveitingu vegan sinubrenna og framkvæmd þeirra. Þá er kveðið á um heimild sveitarstjórnar til að afmarka svæði í brunarvarnaáætlun þar sem óheimilt verði að brenna sinu vegna þeirrar hættu sem af því getur stafað.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum