Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. febrúar 2015 Forsætisráðuneytið

Símtal við forsætisráðherra Danmerkur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, ræddi í dag símleiðis við Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur. Í samtalinu áréttaði forsætisráðherra samúðarkveðjur til dönsku þjóðarinnar og samstöðu með Dönum á erfiðum tímum - hugur Íslendinga væri með sinni nánu frænd- og vinaþjóð á erfiðum stundum sem þessum. Sagði forsætisráðherra árásirnar vera atlögu að lýðræði og mannréttindum sem væru einkennandi fyrir danskt samfélag. Það hefði jafnframt verið aðdáunarvert hvernig Danir hefðu brugðist við ódæðunum af stillingu og einurð.

Forsætisráðherra hafði áður sent forsætisráðherra Danmerkur formlegt samúðarskeyti fyrir hönd ríkissjórnarinnar og íslensku þjóðarinnar.

Utanríkisráðherra verður fulltrúi ríkisstjórnar Íslands á minningarathöfn vegna atburðanna sem haldin verður í Kaupmannahöfn í kvöld.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum