Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. mars 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

Merki Kvískerjasjóðs
Kvískerjasjóður

Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2015. Horft verður sérstaklega til umsókna sem tengjast störfum og áhugasviði Kvískerjasystkina.

Umsóknum skal fylgja:

  • Greinagóð lýsing á verkefninu og markmiðum þess.
  • Tímaáætlun, sem gerir grein fyrir framvindu. 
  • Gera skal grein fyrir helstu samstarfsaðilum.
  • Gera skal grein fyrir fjárhagsáætlun verkefnisins, framlagi samstarfsaðila og fjárhæð sem sótt er um.

Umsóknarfrestur er til 12. apríl nk. og skal umsóknum skilað á rafrænu formi til formanns sjóðsstjórnar, Sigurlaugar Gissurardóttur, Brunnhóli á Mýrum, 781 Hornafirði, merktar Kvískerjasjóður,  á netfangið: [email protected].

Tilkynnt verður um styrkveitingar fyrir lok apríl og verður öllum umsóknum svarað.

Nánari upplýsingar veittar í síma: 478 1029 eða á netfangi: [email protected]

Kvískerjasjóður var stofnaður af umhverfisráðuneytinu árið 2003, til heiðurs systkinunum á Kvískerjum í Öræfum, fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur-Skaftafellssýslu.  Hlutverk sjóðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningarminjum í Austur-Skaftafellssýslu með veitingu rannsóknastyrkja til einstaklinga og stofnana.

Nánari upplýsingar um Kvískerjasjóð

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum