Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. mars 2015 Forsætisráðuneytið

23. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá 

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Áframhaldandi umræða um forgangsatriði
  3. Önnur mál

Fundargerð

23. fundur – haldinn mánudaginn 30. mars 2015, kl. 9.00, í Hannesarholti, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir og Valgerður Bjarnadóttir. Birgir Ármannsson, Róbert Marshall, sem tilnefndur hefur verið til setu í nefndinni af hálfu Bjartrar framtíðar, og Valgerður Gunnarsdóttir höfðu boðað forföll.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

Formaður setti fundinn og stýrði honum.

1.       Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 22. fundar, sem haldinn var föstudaginn 20. mars 2015, var send nefndarmönnum með tölvupósti 27. mars. Fundargerðin var samþykkt án athugasemda.

2.       Áframhaldandi umræða um forgangsatriði

2.1.         Þjóðaratkvæðagreiðslur á grundvelli undirskrifta

Haldið var áfram umfjöllun um þjóðaratkvæðagreiðslur á grundvelli undirskrifta, sbr. einnig umræður á 17. og 20.-23. fundi, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á.

Unnið verður úr umræðum fundarins og ný drög (III) send nefndarmönnum.

2.2.         Framsal valdheimilda í þágu alþjóðasamvinnu

Haldið var áfram umfjöllun um framsal valdheimilda í þágu alþjóðasamvinnu, sbr. einnig umræður á 18. og 22.-23. fundi, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á.

Unnið verður úr umræðum fundarins og ný drög (II) send nefndarmönnum.

2.3.         Umhverfisvernd

Haldið var áfram umfjöllun um umhverfisvernd, sbr. einnig umræður á 18.-20. og 23. fundi, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á.

Unnið verður úr umræðum fundarins og ný drög send nefndarmönnum (drög I að samfelldum texta í stað efnispunkta á glærum, sbr. vinnuáætlun á 19. fundi).

2.4.         Auðlindir

Haldið var áfram umfjöllun um auðlindir og þjóðareign, sbr. einnig umræður á 17., 21. og 23.  fundi, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á.

Unnið verður úr umræðum fundarins og ný drög send nefndarmönnum (drög I að samfelldum texta í stað efnispunkta á glærum, sbr. vinnuáætlun á 19. fundi).

3.       Önnur mál

Ekkert var rætt undir þessum lið.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11.30.

SG skrifaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum