Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. apríl 2015 Forsætisráðuneytið

Fundur forsætisráðherra og framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins

Fundi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra, og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, lauk nú upp úr hádegi, en Stoltenberg er staddur hér á landi í fyrstu heimsókn sinni í embætti framkvæmdastjóra. 

Á fundinum voru öryggismál í Evrópu ofarlega á baugi, þ.m.t. staða mála í Úkraínu og samskiptin við Rússland. Rætt var um aukinn varnarviðbúnað bandalagsins í Evrópu og undirbúning fyrir leiðtogafund bandalagsins í Varsjá á næsta ári og áréttaði forsætisráðherra loforð um aukin framlög til bandalagsins, sem gefin voru á leiðtogafundinum í Wales á síðasta ári. Ógn af hryðjuverkum var ennfremur til umræðu á fundinum, sem og málefni Afganistan en Atlantshafsbandalagið stendur nú að þjálfunaraðgerð í landinu eftir að aðgerðum alþjóðaliðsins, ISAF, lauk um síðustu áramót. Þá voru öryggismál á norðurslóðum rædd og loftrýmisgæsla bandalagsins hér á landi sem þykir hafa heppnast vel. Að síðustu voru netöryggismál til umræðu sem og málefni ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um konur, frið og öryggi sem Ísland hefur stutt við. 

Að loknum fundi með forsætisráðherra hélt framkvæmdastjóri til fundar við utanríkisráðherra. Stoltenberg mun ennfremur eiga fundi með forseta Alþingis og utanríkismálanefnd þingsins, og einnig hitta innanríkisráðherra um borð í varðskipinu Þór. Heimsókn framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins til Íslands lýkur í fyrramálið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum