Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. maí 2015 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra í heimsókn til Sviss og Liechtenstein

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, mun heimsækja Sviss og Liechtenstein dagana 6.-8. maí nk. Ráðherra mun taka þátt í ráðstefnu undir yfirskriftinni „Proudly Small“ í St. Gallen háskóla og halda þar ræðu um málefni norðurslóða. Ennfremur mun forsætisráðherra taka þátt í pallborðsumræðum um stöðu smáríkja í heiminum ásamt forsætisráðherra Möltu, utanríkisráðherra Gana og ríkisstjóra Delaware fylkis í Bandaríkjunum. Þá mun forsætisráðherra eiga tvíhliða fund með varaforsætisráðherra Sviss, Johann Schneider-Ammann, þar sem tvíhliða samskipti ríkjanna, málefni EFTA, norðurslóðir og staða mála í Úkraínu verða meðal umræðuefna. 

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna í St. Gallen má finna á vefnum www.symposium.org.

Í heimsókn sinni til Liechtenstein mun forsætisráðherra eiga fund með forsætisráðherra landsins, Adrian Hasler, þar sem málefni EES-samningsins verða ofarlega á baugi. Ennfremur mun forsætisráðherra eiga fund með krónprinsi Liechtenstein og forseta þingsins. Þá mun forsætisráðherra heimsækja háskólann í Liechtenstein og þjóðminjasafnið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum