Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. maí 2015 Matvælaráðuneytið

Ríkisstjórnin úthlutar 850 milljónum til brýnna verkefna á ferðamannastöðum 

Frá Skaftafelli
Frá Skaftafelli

Íslensk náttúra hefur lagt grunninn að öflugri ferðaþjónustu, sem nú skapar meiri gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið en nokkur önnur atvinnugrein. Vöxtur greinarinnar hefur skapað mörg tækifæri, en einnig áskoranir vegna mikillar ásóknar ferðafólks á viðkvæm náttúrusvæði. Til að tryggja að íslensk náttúra og öflug ferðaþjónusta geti blómstrað samtímis hefur ríkisstjórnin samþykkt að verja í sumar 850 milljónum króna til brýnna uppbyggingar- og verndaraðgerða á ferðamannastöðum sem eru í eigu eða umsjón ríkisins. 

Ráðist verður í 104 verkefni á 51 stað á landinu, auk þess sem viðbótarfé verður varið til aukinnar landvörslu um allt land. Mest verður framkvæmt í Skaftafelli og á Þingvöllum, við Geysi, í Dimmuborgum, á miðhálendinu, við Gullfoss, Dyrhólaey, Dynjanda, Stöng í Þjórsárdal og Dettifoss. Verkefnin eru af ýmsum toga en megináhersla er lögð á framkvæmdir vegna göngustíga, útsýnispalla, bílastæða og salernisaðstöðu. 

Ítarlegt yfirlit yfir fyrirhugaðar framkvæmdir má sjá hér.

Fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun fyrir þetta ár var unnin í samstarfi forsætisráðherra, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra. Kallað var eftir tillögum þeirra stofnana sem hafa umsjón með umræddum svæðum og í kjölfarið var verkefnum forgangsraðað í samræmi við faglegt mat á því hver þörfin væri. Fjármagnið mun renna til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða sem mun annast umsýslu og eftirlit með verkefnaáætluninni.

Framtíðarsýn sem tekur mið af viðkvæmri náttúru og mikilvægi atvinnugreinar

Á næstu árum verður ráðist í enn frekari umbætur á vinsælum ferðamannastöðum í eigu og umsjón ríkisins með það að markmiði að bæta þar skipulag og aðgengi þannig að staðirnir þoli vel þann fjölda sem þangað sækja. Undirbúningur að því verkefni er þegar hafinn.

Einnig er hafin vinna á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðherra við heildarstefnumótun um ferðaþjónustu í landinu og er þar horft til fjölmargra þátta. Einnig verður unnin landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn, í samræmi við frumvarp umhverfis- og auðlindaráðherra sem nú liggur fyrir Alþingi, en þar er gert ráð fyrir víðtæku samstarfi stjórnvalda og hagsmunaaðila.

Fjármögnun verkefnanna er háð samþykki Alþingis, en óskað verður eftir fjárheimildum í tillögum til fjáraukalaga 2015. Fjárlaganefnd Alþingis hefur verið kynnt málið, í samræmi við 33. gr. laga nr. 88/1997, um fjárreiður ríkisins. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum