Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. júní 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Sameining skógræktarstarfs ríkisins í athugun

Ráðunautur leiðbeinir skógareiganda.
Ráðunautur leiðbeinir skógareiganda.

Umhverfis og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, hefur skipað starfshóp til að skoða sameiningu skógræktarstarfs ríkisins í eina stofnun. Um er að ræða Skógrækt ríkisins og landshlutaverkefni í skógrækt, sem eru Vesturlandsskógar, Skjólskógar á Vestfjörðum, Norðurlandsskógar, Héraðs- og Austurlandsskógar og Suðurlandsskógar, auk umsjónar Hekluskógaverkefnisins.  

Markmið vinnunnar er m.a. að samræma stjórnsýslu skógræktarmála og gera hana skilvirkari, auka faglega getu og yfirsýn og að efla búsetu á landsbyggðinni, m.a. með því að styrkja starfsstöðvar í héraði.

Er starfshópnum ætlað að greina hver samlegð sameiningar skógræktarstarfs ríkisins yrði og skila í lok ágúst greinargerð um hugsanlegan ávinning og áskoranir. Hópnum er ætlað að hafa náið samráð við Landssamtök skógareigenda og Skógræktarfélag Íslands. Í starfshópnum sitja:

  • Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, formaður,
  • Vilhjálmur Árnason, alþingismaður,
  • Jón Geir Pétursson, skrifstofustjóri í umhverfis- og auðlindaráðuneyti,
  • Björn Helgi Barkarson, sérfræðingur í umhverfis- og auðlindaráðuneyti,
  • Jón Loftsson, skógræktarstjóri frá Skógrækt ríkisins og
  • Björn Jónsson, framkvæmdastjóri Suðurlandsskóga, fulltrúi landshlutaverkefna í skógrækt.

 Með hópnum starfar Guðrún Ragnarsdóttir ráðgjafi auk ritara.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum