Framkvæmdastjóri Evrópuráðsins í Stjórnarráðshúsinu
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, funduðu í sameiningu með Thorbjørn Jagland, framkvæmdastjóra Evrópuráðsins, að loknum fundi í ríkisstjórn í Stjórnarráðshúsinu í morgun. Á fundinum var meðal annars rætt um lýðræðisþróun í Evrópu og stöðu mála í Úkraínu. Jagland er staddur hér á landi í boði utanríkisráðherra og heldur af landi brott í dag.