Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. júlí 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfisráðherrar Íslands og Frakklands funda á Þingvöllum

Fundað á Þingvöllum
Fundað á Þingvöllum

Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra átti fund með Ségolène Royal, ráðherra umhverfis- og orkumála í Frakklandi, á Þingvöllum í gær, 28. júlí. Ráðherrarnir ræddu einkum loftslagsfund Sameinuðu þjóðanna í París í desember næstkomandi, þar sem reynt verður að ná nýju hnattrænu samkomulagi til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Einnig ræddu ráðherrarnir um náttúruvernd og verndarsvæði og fleiri umhverfismál. 

Royal sýndi jarðhitanýtingu mikinn áhuga og lýsti yfir vilja við að koma á samstarfi íslenskra og franskra aðila á því sviði, þar sem víða væru vannýtt tækifæri til nýtingar jarðhita, m.a. í Afríku og eyríkjum í karabíska hafinu. Almennt stefndu Frakkar að stóraukinni notkun á endurnýjanlegri orku. 

  

Ráðherrar funda á Þingvöllum

Umhverfis- og auðlindaráðherra kynnti stefnu Íslands í loftslagsmálum og landsmarkmið sem Ísland hefur lagt fram fyrir Parísarfundinn. Þar sem rafmagnsframleiðsla og húshitun á Íslandi færi fram með endurnýjanlegri orku þyrfti að skoða aðra þætti til að draga úr losun, m.a. frá bílum og skipum. 

Fundað á Þingvöllum

Ísland styddi metnaðarfullt hnattrænt samkomulag í París, með víðtækri þátttöku ríkja heims. Ráðherra lýsti yfir ánægju með að Frakkar beittu sér augljóslega af krafti í því að tryggja að samkomulag náist í París. 

  











Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum