Hoppa yfir valmynd

Frétt

31. ágúst 2015 Utanríkisráðuneytið

Heimsókn framkvæmdastjóra OECD til Íslands

Angel Gurria OECD
Angel-Gurria-OECD

Angel Gurría, framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), mun dvelja í opinberum erindum hér á landi dagana 31. ágúst og 1. september nk. 


Megintilgangur heimsóknar Gurría er að kynna efnahagsskýrslu OECD fyrir Ísland, en slíkar skýrslur eru unnar af OECD fyrir öll 34 aðildarríki stofnunarinnar á um tveggja ára fresti. Þá mun Gurría hitta Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, Bjarna Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Má Guðmundsson, seðlabankastjóra. 

Gurría mun auk þess eiga fund með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, og sækja sameiginlegan fund Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands. Þá heimsækir Gurría Hellisheiðarvirkjun meðan á heimsókn hans stendur.  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum