Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. október 2015 Forsætisráðuneytið

595/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

Úrskurður

Hinn 1. október 2015 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 595/2015 í máli ÚNU 14100013.

Kæra og málsatvik

Með erindi dags. 14. október 2014 kvartaði A yfir afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni um upplýsingar um biðlista eftir félagslegu húsnæði annars vegar og leiguhúsnæði fyrir eldri borgara hins vegar. Í kæru kemur fram að Vestmannaeyjabær hafi ekki svarað beiðninni. Beri bæjaryfirvöld það fyrir sig að upplýsingarnar séu ekki til hljóti það að teljast brot á lögum um Þjóðskjalasafn og héraðsskjalasöfn.

Málsmeðferð

Kæran var kynnt Vestmannaeyjabæ með bréfi dags. 28. október 2014 og veittur kostur á að koma á framfæri umsögn um hana. Í umsögn bæjarins dags. 18. nóvember 2014 segir að upphaflegt erindi kæranda hafi verið þess eðlis að ekki hefði verið unnt að svara því. Kærandi hafi áður fengið munnleg svör frá félagsráðgjafa um úthlutun á félagslegum íbúðum. Úrskurðarnefndin kynnti kæranda umsögnina með bréfi dags. 8. desember 2014, en bréfið var endursent vegna breyttrar búsetu kæranda. Eftir að upplýsingar bárust um nýtt aðsetur hans var umsögnin send að nýju með bréfi dags. 24. mars 2015 og veittur kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Þær bárust þann 14. apríl 2015. Þar kemur meðal annars fram að upphafleg fyrirspurn kæranda hafi náð yfir biðlista eftir dvöl á dvalarheimili aldraðra, barnaheimilum, félagslegu húsnæði og húsnæði fyrir aldraða. Kærandi líti svo á að erindi sínu sé enn ósvarað.

Niðurstaða

Í máli þessu er deilt um afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni kæranda um gögn um biðlista eftir félagslegu húsnæði og leiguhúsnæði fyrir eldri borgara. Vestmannaeyjabær hefur borið því við að upphafleg beiðni kæranda hafi verið óljós og því ekki unnt að svara henni. Úrskurðarnefndinni hefur ekki borist afrit af beiðninni og getur því ekki tekið afstöðu til þess hvort skilyrði upplýsingalaga um tilgreiningu gagna eða efnis máls sem þau tilheyra hafi verið uppfyllt. Um kæruheimild vísast til 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Í 3. mgr. 15. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 segir að beiðni megi vísa frá ef ekki er talið mögulegt á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga að afmarka hana við tiltekin gögn eða tiltekið mál. Áður en til þess kemur ber að veita málsaðila leiðbeiningar og gefa honum færi á að afmarka beiðni sína nánar. Þá ber samkvæmt 1. mgr. 17. gr. laganna að taka ákvörðun um hvort orðið verði við beiðni um aðgang að gögnum svo fljótt sem verða má. Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar skuli skýra frá ástæðum tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta. Stjórnvöldum er þannig ekki í sjálfsvald sett hvort þau svari beiðnum um aðgang að upplýsingum eftir lögunum. Meðferð Vestmannaeyjabæjar á beiðni kæranda samrýmdist að þessu leyti hvorki upplýsingalögum né leiðbeiningarskyldu stjórnvalda, sbr. 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Eins og áður segir hefur úrskurðarnefndin ekki fengið afrit af beiðni kæranda og hefur því ekki forsendur til að úrskurða um rétt hans til aðgangs að umbeðnum upplýsingum. Verður því ekki hjá því komist að vísa málinu aftur til Vestmannaeyjabæjar til nýrrar og lögmætrar efnislegrar afgreiðslu.

Úrskurðarorð:

Beiðni A um aðgang að upplýsingum um biðlista eftir félagslegu húsnæði og leiguhúsnæði fyrir eldri borgara er vísað til Vestmannaeyjabæjar til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

Hafsteinn Þór Hauksson

formaður

Sigurveig Jónsdóttir Símon Sigvaldason

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum