Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. október 2015 Innviðaráðuneytið

Skipulagsreglur fyrir Egilsstaðaflugvöll auglýstar

Innanríkisráðuneytið hefur auglýst skipulagsreglur fyrir Egilsstaðaflugvöll. Hafa þær að geyma fyrirmæli um starfsemi og starfsheimildir innan flugvallarins, reglur um hindranafleti og fleira. Unnt er að senda ráðuneytinu skriflegar athugsemdir til og með 16. nóvember næstkomandi og skulu þær sendar á netfangið [email protected].

Skipulagsreglurnar eru settar í samræmi við heimild í 59. gr. laga um loftferðir, nr. 60 frá 1998. Tilgangur og markmið reglnanna er:

  • Að marka skýra og gagnsæja stefnu um leyfða starfsemi innan flugvallarins
  • Að tryggja flugöryggi vallarins með því að binda í skipulag hæðartakmarkanir sem nauðsynlegar eru vegna öryggis flugvallarstarfseminnar og reglur um notkun sýnilegra leysigeisla sem nauðsynlegar eru vegna öryggis flugvallarstarfseminnar
  • Að einfalda umfjöllun og ákvarðanatöku um starfsemi innan vallarins og hæðir húsa innan og í nágrenni flugvallarins

Með reglunum er verið að setja nánari reglur um starfsemi innan flugvallarins en gert er í deiliskipulagi. Þá er verið að festa í sessi með skipulagi hindranafleti vallarins, þ.e. takmarkanir á hæðum húsa á tilteknum svæðum, sem unnið hefur verið eftir hingað til. Eru hindranafletir þessir byggðir á skilgreiningum alþjóðlegra skuldbindinga (t.d. Chicago samningnum), lögum um loftferðir nr. 60 frá 1998 og reglugerð um flugvelli.

Skorað er á fasteignaeigendur á Fljótsdalshéraði og aðra hagsmunaaðila að kynna sér fyrirliggjandi drög að reglum. Athugasemdir eða ábendingar við tillöguna skulu vera skriflegar og berast Innanríkisráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, 101 Reykjavík, ekki seinna en 16. nóvember. Eftir þann tíma verður ekki tekið við athugasemdum. Litið er svo á að þeir sem gera ekki athugsemdir við tillöguna teljist samþykkir henni.

Eftir kynningartíma verða athugasemdir og ábendingar sem berast teknar til ítarlegrar athugunar. Verði ákveðið að ráðast í breytingar á tillögunni vegna athugasemdanna verða slíkar breytingar kynntar hlutaðeigandi áður en gengið verður frá reglunum. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum