Hoppa yfir valmynd

Frétt

8. október 2015 Utanríkisráðuneytið

Fjölþjóðleg ráðstefna um flóttamannavanda

IMG_2873
Fjölþjóðleg ráðstefna utanríkisráðherra  og dóms- og innanríkisráðherra  um þann gífurlega vanda sem við er að etja í Evrópu vegna straums flóttamanna um Balkanskaga og austanvert Miðjarðarhafssvæðið, fór fram í kvöld, fimmtudagskvöld í Lúxemborg. Fyrir hönd Íslands sátu ráðstefnuna Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytisins. Fyrr um daginn tók Ólöf Nordal innanríkisráðherra þátt í fundi Schengen ríkja þar sem meðal annars var fjallað um hvernig efla megi ytri landamæri svæðisins.

Auk ríkja ESB og samstarfsríkjanna í Schengen þ.m.t. Íslands, tóku þátt í ráðstefnunni öll ríki Balkanskaga,  Tyrkland, Jórdanía og Líbanon og fulltrúar alþjóðastofanana, m.a. Flóttamannastofnum Sameinuðu þjóðanna, Matvælastofnun SÞ og Evrópulögreglunnar, Europol.

Tilefni ráðstefnunnar var að ræða viðbrögð við hinum stöðuga straumi flóttamanna frá botni Miðjarðahafs, m.a.:

· hvernig best megi styðja við þau ríki sem bera þyngstu byrðina af flóttamannastraumnum frá Sýrlandi, þ.e. Tyrkland, Jórdaníu og Líbanon.
· hvernig bæta megi móttöku og meðferð hælisumsókna í ríkjum sem flestir flóttamenn fara um.  
· leiðir til að efla samvinnu í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi við smygl á fólki.
· leiðir til að ráðast að rótum vandans og koma á friði og stöðugleika á svæðinu.
· samvinna við önnur ríki sem flóttamenn koma frá.

Utanríkisráðherra greindi frá nýlegri ákvörðun ríkisstjórnar Íslands um aukið framlag til aðstoðar flóttafólki, bæði vegna þeirra sem sækja um hæli á Íslandi og þeirra sem dvelja í flóttamannabúðum.

Yfirlýsing ráðstefnunnar


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum