Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. október 2015 Innviðaráðuneytið

Sjö nýir loftferðasamningar milli Íslands og annarra ríkja

Sjö nýir loftferðasamningar voru gerðir á ráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar um loftferðasamninga sem haldin var í Tyrklandi í vikunni. Markmið hennar er að skapa aðildarríkjum stofnunarinnar vettvang til viðræðna um gerð og framkvæmd tvíhliða loftferðasamninga í því skyni að opna nýja markaði fyrir flugrekendur. Alls sótti 101 ríki ráðstefnuna og hafa aldrei svo mörg ríki sótt hana.

Nýir samningar eru við Bahamaeyjar, Gíneu Bissá, Kongó, Líberíu, Simbabve, Kamerún og St. Maarten. Jafnframt var fundað með Gíneu ekki tókst að ljúka samningagerð á þeim fundi.

Jafnframt voru haldnir þrír þríhliða fundir ásamt Noregi með Brasilíu, Moldavíu og Ísrael þar sem rætt var um mögulega aðkomu Íslands og Noregs að samningum ríkjanna við Evrópusambandið. Ísland og Noregur eru aðilar að loftferðasamningi ESB og Bandaríkjanna og leggja áherslu á aðgang að sem flestum samningum sambandsins við þriðju ríki.

Auk þess var haldinn tvíhliða fundur með fulltrúum Ísraels þar sem rædd voru málefni er varða flugsamgöngur milli ríkjanna. Samkomulag náðist um að skiptast á upplýsingum og undirbúa frekari samskipti ríkjanna á þessu sviði.

Vaxandi umsvif íslenskra flugrekenda hafa kallað á aukna áherslu á gerð tvíhliða loftferðasamninga. Misjafnt er um hversu víðtæk réttindi tekst að semja í hverju tilviki en auk gagnkvæmra heimilda til farþega- og farmflugs milli samningsríkja tekst oftast að semja um flug til og frá þriðju ríkjum og viðkomandi samningsríki. Fjöldi samninga sem Ísland hefur gert við önnur ríki er nú 95 talsins. Flug á grundvelli þeirra samninga og annarra samkomulaga um réttindi sem Ísland hefur gert heimilar nú flug til 109 ríkja.

Íslensku sendinefndina skipuðu Unnur Orradóttir, sendiráðunautur, sem jafnframt var formaður og Gunnar Örn Indriðason, lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum