Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. desember 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs janúar-október 2015

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar – október 2015 liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Tekjujöfnuðurinn var lítillega jákvæður en er betri en gert hafði verið ráð fyrir. Innheimtar tekjur jukust um tæpa 32 ma.kr. milli ára en móti jukust greidd gjöld um 39,5 ma.kr. Handbært fé frá rekstri var neikvætt um tæpa 20 ma.kr. samanborið við jákvætt handbært fé upp á tæpa 18 ma.kr. 2014. Þessi viðsnúningur milli ára skýrist að stórum hluta með því að leiðrétting verðtryggðra húsnæðislána sem gjaldfærð var í lok ársins 2014 kom til greiðslu í byrjun árs 2015.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum