Skipan Vísinda- og tækniráðs til næstu þriggja ára
Forsætisráðherra hefur skipað Vísinda- og tækniráð til næstu þriggja ára. Vísinda- og tækniráð starfar skv. lögum nr. 2/2003 og hefur m.a. það hlutverk að marka stefnu stjórnvalda á sviði vísinda- og tæknimála til þriggja ára í senn.
Í Vísinda- og tækniráði 2016-2018 eiga sæti:
- Helga Zoëga, doktor í faraldsfræðum og dósent við HÍ, án tilnefningar.
Varamaður: Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, doktor í heilsuhagfræði og prófessor við Háskóla Íslands. - Gunnar Haraldsson, doktor í hagfræði, án tilnefningar.
Varamaður: Kristján Leósson, framkvæmdastjóri efnis-, líf- og orkutæknideildar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. - Ásdís Jónsdóttir, sérfræðingur í mennta og menningarmálaráðuneyti, tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðherra.
Varamaður: Stefán Baldursson, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu. - Ragnhildur Helgadóttir, prófessor og forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík, tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðherra
Varamaður: Daði Már Kristófersson, forseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands. - Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, tilnefndur af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Varamaður: Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði Arion banka. - Ragnheiður H. Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar, tilnefnd af iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Varamaður: Elvar Knútur Valsson, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. - Guðni Axelsson, sviðsstjóri hjá Íslenskum orkurannsóknum, tilnefndur af umhverfis- og auðlindaráðherra.
Varamaður: Ingvar Kristinsson, þróunarstjóri Veðurstofu Íslands. - Karl Andersen, yfirlæknir Hjartagáttar á Landspítalanum, tilnefndur af velferðarráðherra.
Varamaður: Erla Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands. - Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, tilnefndur af Samstarfsnefnd háskólastigsins.
Varamaður: Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands. - Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, tilnefndur af Samstarfsnefnd háskólastigsins.
Varamaður: Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands. - Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, tilnefndur af Samstarfsnefnd háskólastigsins.
Varamaður: Erla Björk Örnólfsdóttir, rektor Hólaskóla. - Steinunn Gestsdóttir, prófessor við HÍ, tilnefnd af Samstarfsnefnd háskólastigsins.
Varamaður: Þórarinn Guðjónsson, dósent við Háskóla Íslands. - Eyrún Valsdóttir, deildarstjóri fræðsludeildar ASÍ, tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands.
Varamaður: Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Byggiðnar. - Róbert Farestveit, hagfræðingur hjá ASÍ, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands.
Varamaður: Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. - Erik Figueras Torras, framkvæmdastjóri tæknisviðs Símans, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins.
Varamaður: Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður Samtaka sjálfstæðra skóla.
Svana Helen Björnsdóttir, starfandi stjórnarformaður og stofnandi Stikla ehf., tilnefnd af Samtökum atvinnulífsinsVaramaður: Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri fjármála og fasteignareksturs Háskólans í Reykjavík.
Auk framangreindra eiga sæti í ráðinu: forsætisráðherra, sem jafnframt er formaður ráðsins, fjármála- og efnahagsráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra, iðnaðar og viðskiptaráðherra, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, umhverfis- og auðlindaráðherra og heilbrigðisráðherra.
Nánari upplýsingar um hlutverk og starfsemi Vísinda- og tækniráð er að finna hér á vefsvæði þess .