Hoppa yfir valmynd

Frétt

31. desember 2015 Forsætisráðuneytið

Trúin á hið góða

Árið 2015 reyndist Íslendingum að flestu leyti vel. Þegar litið er yfir liðið ár, eins og tíðkast jafnan um áramót, verður okkur þó hugsað til þeirra sem tekist hafa á við erfiðleika og vonum að úr rætist, eins og kostur er, á nýju ári.

Nýtt ár felur í sér ný tækifæri og nýja von. Þá er líka mikilvægt að við séum meðvituð um hið góða, það sem hefur þróast í rétta átt, því að það er besta hvatningin til að gera enn betur í framtíðinni og hjálpa þeim sem hjálpina þurfa, hér á landi og annars staðar.

Árangurinn er besta hvatningin

Árið 2015 hefur sannarlega veitt okkur hvatningu til áframhaldandi árangurs á komandi árum.

Árangur næst með því að fylgja skynsamlegri stefnu og taka réttar ákvarðanir. Þess vegna er svo mikilvægt að við metum hvaða stefna hefur reynst vel og hvaða ákvarðanir hafa orðið til heilla. Þannig getum við gert meira af því sem vel reynist og minna af hinu. En til þess að það sé hægt þarf að viðurkenna árangurinn í stað þess að láta umræðuna alla snúast um þau verkefni sem enn á eftir að leysa og gera þau að ástæðu til að hverfa frá því sem virkar.

Vinna ríkisstjórnarinnar undanfarið ár, og reyndar allt þetta kjörtímabil hefur sannarlega skilað árangri. Atvinnuleysi er nú mun minna en í öðrum Evrópulöndum, skuldir heimilanna hafa lækkað um tugi prósenta og hlutfall skulda af ráðstöfunartekjum er nú töluvert lægra en í mörgum nágrannalöndum okkar. Verðbólga hefur haldist stöðug og hefur verið minni en nokkru sinni áður á þessari öld. Þrátt fyrir mestu launahækkanir um árabil sýna spár að takast muni betur að halda aftur af verðbólgunni á næstu árum en áður hafði verið áætlað.

Aukin velferð og aukinn jöfnuður

Kaupmáttur, það er að segja velmegun, landsmanna hefur aukist hraðar á undanförnum 30 mánuðum en dæmi eru um á síðari árum í þróuðu samfélagi. Ráðstöfunartekjur heimilanna hafa auk þess aukist vegna skattalækkana og afnáms vörugjalda og munu hækka enn meira nú um áramót þegar tollar af fjölmörgum vörutegundum verða felldir niður. Enn merkilegra má teljast að á sama tíma og verðmætasköpun eykst hratt með einum mesta hagvexti á Vesturlöndum hefur tekist að verja og auka jöfnuð á Íslandi. Þannig hafa til dæmis laun verkafólks hækkað hlutfallslega meira en laun stjórnenda og annarra tekjuhærri hópa og lífeyrisgreiðslur almannatrygginga og örorkubætur hækkað hraðar en laun almennt. Hlutfall fátæktar hefur ekki verið lægra en nú á Íslandi og tekjuskipting er hvergi jafnari.

Það er ekki þar með sagt að vandi allra sé leystur. En besta leiðin til að fást við þau úrlausnarefni sem enn bíða okkar er að halda áfram með þeim aðferðum sem hafa virkað. Það væri fráleitt að gefast upp af því að fullkomnun hefur ekki verið náð og reyna í staðinn aðferðir eða hugmyndafræði sem lofa fullkomnu samfélagi. Það eru aðferðir sem hafa oft verið reyndar undir ýmsum nöfnum og í ólíkum búningum en alltaf skilað afturför, sérstaklega fyrir þá sem lofað var að verja.

Árangurinn dregur fram undantekningarnar

Þegar árangur næst á mörgum sviðum beinist athyglin að undantekningunum. Þær vekja meiri athygli en ella einmitt vegna þess að þær skera sig úr en það þýðir um leið að þær eru orðnar viðráðanlegri en áður. Látum það verða okkur hvatningu til að gera enn betur. Látum árangurinn, hið góða, leiða okkur áfram fremur en neikvæðni og svartsýni.

Að óttast hið góða

Eins undarlegt og það er virðist afmarkaður en hávær hópur fólks eiga erfitt með að sætta sig við góðar fréttir. Jákvæð þróun vekur hjá honum gremju, hún er litin hornauga og tortryggð á allan mögulegan hátt. Þetta er sá hópur fólks sem getur ekki sætt sig við að jákvæðir hlutir gerist ef þeir gerast ekki í krafti hinnar einu „réttu“ hugmyndafræði.

Lýsandi dæmi um þetta birtist fyrir fáeinum vikum þegar hópi fólks gramdist mjög að Hagstofa Íslands skyldi benda á að engin markverð breyting hefði orðið á hlutfalli Íslendinga, á mismunandi aldursbili, sem fluttu frá landinu árið 2015. Raunar reyndist hlutfall brottfluttra undir 40 ára aldri lágt í samanburði við liðin ár og áratugi.

Áður hafði hinu gagnstæða verið haldið fram og mikið úr því gert. -Loksins var búið að finna eitthvað sem kallast gat neikvæð þróun, haldreipi í straumi jákvæðrar þróunar samfélagsins. Reyndar var alltaf ljóst að mun fleiri hefðu flutt til landsins en frá því árið 2015 en haldreipið fólst í þeirri kenningu að óvenju margir ungir íslenskir ríkisborgarar væru að flytja frá landinu.

Þegar Hagstofan birti svo tölfræði sem sýndi hið rétta,tölur sem ættu að hafa verið flestum fagnaðarefni, brást neikvæði hópurinn hinn versti við og gengu sumir jafnvel svo langt að ráðast á Hagstofuna fyrir það eitt að birta tölfræðilegar staðreyndir. Stofnunin var sökuð um að hafa falsað tölurnar og það hlyti hún að hafa gert vegna pólitísks þrýstings. Svo langt voru sumir til í að ganga til að verja hina neikvæðu heimsmynd sína að þeir voru tilbúnir til að beita embættismenn ógnunum, -embættismenn hjá stofnun sem birtir tölfræði. Þar skyldu menn búast við árásum ef birtar yrðu tölur sem ekki féllu að hinni dökku heimsmynd.

Stígum öll úr skugganum

Við þurfum, sem samfélag að komast úr skugga neikvæðni og niðurrifs í öllum sínum myndum. Við þurfum að læra að meta þau gæði sem við búum við og þann árangur sem við höfum náð og láta það verða okkur hvatningu til að gera enn betur. Þeir sem stundum eru kallaðir hinn þögli meirihluti verða að þora að láta ljós sitt skína og óttast ekki hramm nátttröllanna. Þau þrífast bara í myrkri. Upplýsta umræðu þola þau ekki.

Óttumst ekki myrkrið því það er bjart framundan. Það þýðir ekki að við getum leyft okkur að vera værukær og líta á hluti sem sjálfgefna. Þvert á móti þurfum við að gera okkur ljóst að árangur okkar, staða okkar nú og framtíðarhorfur eru ekki sjálfgefnar. Árangurinn varð til með menningu, hugarfari og atorkusemi liðinna kynslóða og arftaka þeirra. Við þurfum líka að vera meðvituð um mikilvægi þeirra gömlu sanninda að ganga skuli hægt um gleðinnar dyr. Nú þurfa landsmenn að standa saman við að verja árangurinn og taka skynsamlegar ákvarðanir með langtímaávinning að leiðarljósi.

Við eru vel búin undir framtíðina

Sá árangur sem þegar hefur náðst við að vinna á skuldavanda íslenskra heimila, fyrirtækja og ríkissjóðs mun bæta stöðu samfélagsins til langs tíma. Aðgerðir vegna uppgjörs slitabúa bankanna og losunar fjármagnshafta, stærstu efnahagsaðgerð Íslandssögunnar, hafa þegar skilað miklum árangri og vakið athygli víða um heim. Sá árangur mun birtast enn frekar á nýja árinu og komandi árum og áratugum, og gera okkur vel í stakk búin til að takast á við áskoranir framtíðarinnar, hvort sem þær felast í uppbyggingu heilbrigðiskerfisins, bættum innviðum um allt land eða áframhaldandi aukinni velmegun allra hópa samfélagsins.

Þessar aðgerðir og ótal margar fleiri hafa gert íslenskt samfélag vel í stakk búið til að nýta tækifæri ársins 2016 og þeirra sem á eftir koma. En árangurinn veltur á því að við stöndum saman um að forðast hætturnar og nýta úrræðin. Árangurinn veltur líka á því að við höldum okkur við þær leiðir sem virka. Samfélög búa yfir miklu afli sem nýta má vel eða illa. Forðumst hinar myrku hliðar þess afls og nýtum björtu hliðarnar til hins ítrasta. Þær eru sterkari og skila meiri árangri fyrir alla.

Það er bjart yfir íslensku samfélagi. Vinnum saman í þeirri birtu á nýju ári.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum