Hoppa yfir valmynd

Frétt

22. janúar 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Lokauppgjör vegna höfuðstólsleiðréttingar húsnæðislána

Nýlega var gengið frá lokauppgjöri milli ríkissjóðs og fjármálafyrirtækja vegna höfuðstólsleiðréttingar fasteignaveðlána. Greiðslan var lokaáfangi í framkvæmd aðgerðaráætlunar ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun húsnæðislána.

Við samþykkt leiðréttingar var lánum umsækjenda skipt í frumlán og leiðréttingarlán. Greiðslubyrði lántakanda lækkaði strax við samþykkt um alla höfuðstólsleiðréttinguna en ríkið tók yfir greiðslu af leiðréttingarláninu. Við lokauppgjör ríkissjóðs hverfur svokallaður leiðréttingarhluti lána af fasteignaveðlánum. Greiðslan hefur þau áhrif að höfuðstóll 51 þúsund fasteignaveðlána lækkar.

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til lækkunar á skuldavanda heimila voru kynntar í nóvember 2013. Í framhaldi hófst undirbúningur við framkvæmd en aðgerðirnar fólust annars vegar í beinni niðurfærslu á höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána og hins vegar í heimild til nýtingar séreignarsparnaðar til þess að niðurgreiða húsnæðislán eða til að fjárfesta í húsnæði. Sú leið er enn opin og verður til ársins 2017.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum