Hoppa yfir valmynd

Frétt

22. janúar 2016 Heilbrigðisráðuneytið

Meðferðarátakgegn lifrarbólgu C hafið

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra

Samstarfsverkefni íslenskra heilbrigðisyfirvalda og lyfjafyrirtækisins Gilead sem miðar að því að útrýma lifrarbólgu C á Íslandi er hafið. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra staðfesti í dag samning milli Landspítala og Gilead  um þetta einstaka lýðheilsuverkefni sem unnið hefur verið að í rúmlega eitt ár að frumkvæði sérfræðinga Landspítalans í samstarfi við velferðarráðuneytið, sóttvarnarlækni og SÁÁ.

Fyrstu sjúklingarnir verða kallaðir til meðferðar í næstu viku en átakið verður unnið í áföngum og um 200 sjúklingar teknir til meðferðar hverju sinni.

Talið er að um 800 - 1.000 einstaklingar séu smitaðir af lifrarbólgu C hér á landi. Stefnt er að því að bjóða öllum sem greindir eru með smit meðferð innan tveggja ára með lyfinu Harvoni sem lyfjafyrirtækið Gilead leggur til verkefnisins. Harvoni er eitt þeirra nýju lyfja sem veita hvað bestan meðferðarárangur og leiðir til lækningar hjá langflestum sem fá meðferð. Lyfin eru gefin í töfluformi daglega meðan á meðferð stendur, að jafnaði í átta til tólf vikur.

Átak sem miðar að því að útrýma lifrarbólgu C

Lifrarbólga C er alvarlegur og í mörgum tilvikum lífshættulegur sjúkdómur þar sem þekktar afleiðingar eru skorpulifur, lifrarkrabbamein og lifrarbilun. Lifrarbólga C er víða um heim algengasta ástæðan fyrir lifrarígræðslu og á Norðurlöndunum stefnir einnig í þá átt, þ.m.t. á Íslandi.

Sigurður Ólafsson, umsjónarlæknir lifrarlækninga á LandspítalaJafn umfangsmikið meðferðarátak við lifrarbólgu C og hér um ræðir á sér vart fordæmi, meðal annars vegna þess hve dýr lyfin eru. Meðferð er jafnan takmörkuð við þá sem eru komnir með lifrarskemmdir á ákveðnu stigi af völdum sjúkdómsins. Ávinningurinn af átaki sem miðar að því að útrýma lifrarbólgu hér á landi ætti því að vera afar mikill fyrir heilbrigðiskerfið til lengri tíma litið þar sem nýgengi skorpulifrar gæti lækkað og þörf fyrir lifrarígræðslur minnkað. Þess má vænta að góður árangur af átakinu geti orðið öðrum löndum hvatning í baráttunni gegn þessum útbreidda og alvarlega sjúkdómi.

Lyfjafyrirtækið Gilead leggur lyfið Harvoni til verkefnisins í faraldsfræðilegu rannsóknarskyni. Samhliða meðferðarátakinu fara fram rannsóknir á árangri þess til lengri og skemmri tíma, m.a. á sjúkdómsbyrði og áhrif á langtímakostnað við heilbrigðisþjónustu.

Samstarf við SÁÁ

Embætti sóttvarnarlæknis sem fer með yfirumsjón með verkefninu á grundvelli sóttvarnarlaga hefur falið Landspítala umsjón með meðferðarátakinu  og gert samning við spítalann þess efnis. Samningurinn gerir göngudeildum Landspítala kleift að hafa sambandi við og bjóða öllum einstaklingum á Íslandi sem greinst hafa með lifrarbólgu C og njóta sjúkratryggingar hér á landi lyfjameðferð gegn sjúkdómnum. Jafnframt heimilar þessi samningur Landspítala að starfa með öðrum  heilbrigðisstofnunum að framgangi þessa átaks. Aðalsamstarfsaðili  verður SÁÁ en á sjúkrahúsinu Vogi hefur verið unnið mikilvægt starf við skimun fyrir lifrarbólgu C hjá áhættuhópum og einnig á sviði forvarna. Meginstarfsstöðvar átaksins verða því þrjár, á Landspítala við Hringbraut, Landspítala í Fossvogi og á Sjúkrahúsinu Vogi.

Haft verður samband við sjúklinga til að bjóða þeim meðferð.

Stofnuð hefur verið upplýsingasíða um meðferðarátakið á vef Landspítala, auk þess sem upplýsingar eru veittar í gjaldfrjálsu símanúmeri:

 Frá vinstri: María Heimisdóttir, Kristján Þór, Páll Matthíasson, Sigurður Ólafsson og Þórarinn Tyrfingsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum