Hoppa yfir valmynd

Frétt

19. febrúar 2016 Forsætisráðuneytið

48. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Drög að þremur frumvörpum
  3. Önnur mál

Fundargerð

48. fundur – haldinn föstudaginn 19. febrúar 2016, kl. 14.00, í fundarsal forsætisráðuneytis við Hverfisgötu.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Einar Hugi Bjarnason, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir. Róbert Marshall sótti fundinn að beiðni Bjartrar framtíðar. Valgerður Gunnarsdóttir hafði boðað forföll.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 47. fundar, sem haldinn var þriðjudaginn 16. janúar 2016, lögð fram og samþykkt án athugasemda.

2. Drög að þremur frumvörpum

Fjallað var um fyrirliggjandi frumvarpsdrög og samþykkt að birta þau til umsagnar og athugasemda. Veittur verði frestur til 8. mars í þeim tilgangi og leitast við að kynna málið sem best.

3. Önnur mál

Ekkert var rætt undir þessum lið.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:00.                                              

SG ritaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum