Hoppa yfir valmynd

Frétt

10. mars 2016 Forsætisráðuneytið

Björn Björnsson - Ákvæðin þrjú

Almennt séð tel ég að tillögur stjórnarskrárnefndar nú séu verri en
tillögur stjórnlagaráðs. Þær ganga skemur, eru að sumu leyti útþynntari
og því miður alveg augljóslega sniðnar að hagsmunum ráðandi afla í
samfélaginu, bæði pólitískra og peningalegra.

Ég mundi því undir öllum kringumstæðum leggjast eindregið gegn þessum
tillögum.

Ég tel hins vegar ekki ástæðu til að rökstyðja það nánar á þessu stigi,
vegna þess að ein stór röksemd blasir svo við gegn þessum tillögum.

Í þjóðaratkvæðagreiðslu haustið 2012 samþykktu tveir þriðju þeirra sem
greiddu atkvæði að tillögur stjórnlagaráðs skyldu verða grundvöllur
nýrrar stjórnarskrár.

Þótt atkvæðagreiðslan hafi verið „ráðgefandi“ tel ég það svo ríka
siðferðilega skyldu stjórnvalda að fara eftir niðurstöðum
þjóðaratkvæðagreiðslu - alveg sérstaklega í svo mikilsverðu máli sem
snertir sjálf grunnlög íslensku þjóðarinnar - að ég tel í alla staði
ótækt að fara nú að taka afstöðu til - og hvað þá samþykkja -
stjórnarskrártillögu sem augljóslega gengur gegn vilja þjóðarinnar í
þessari atkvæðagreiðslu.

Í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar fólst auðvitað ekki endilega að
samþykkja skyldi tillögur stjórnlagaráðs sem nýja stjórnarskrá upp á
hvern punkt og prik. Niðurstaðan kallar hins vegar á að ekki skuli
samþykktar nýjar stjórnarskrártillögur sem eru jafn fjarri tillögum
stjórnlagaráðs og tillögur ykkar gera ráð fyrir.

Af þeim sökum tel ég að tillögur hinnar núverandi stjórnarskrárnefndar
séu að engu hafandi, og það væri í andstöðu við og í raun nánast móðgun
við vilja þjóðarinnar og eðlilega stjórnskipan í landinu að svo mikið
sem bera þær undir atkvæði.

Kveður
Björn Björnsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum