Hoppa yfir valmynd

Frétt

10. mars 2016 Forsætisráðuneytið

Leo Smári Gunnarsson - Þjóðaratkvæði

Breytingatillögur við þjóðaratkvæðistillöguna

1)   Að lög taki almennt ekki gildi fyrr en að þeim 4 vikum liðnum, sem þurfa að líða til að fá úr því skorið hvort  þjóðin nýti málsskotsrétt sinn og vísi máli í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Nema að þjóðin nýti málsskotsrétt sinn og vísi málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu.  Að lög taki þá ekki gildi fyrr en að úr því fæst skorið hvort að þau hafi verið felld eða staðfest í þjóðaratkvæðagreiðslu.

2)   Að ákvæði um neyðarlög sé til staðar svo að stjórnvöld geti brugðist við slíkum aðstæðum eins og stríði, hryðjuverkum, náttúruhamförum eða efnahagslegum hamförum og Alþingi hafi þá heimild til að setja neyðarlög sem að taka á slíkum aðstæðum.

Breytingartillaga við 26. gr. stjórnarskrárinnartil samræmingar við þjóðaratkvæðisákvæðið

3)   Til samræmingar yrði 26. gr. breytt þannig að ef forsetinn synjar lögum staðfestingar taki þau ekki gildi fyrr en að þjóðaratkvæðagreiðslu lokinni og þá að því gefnu að þau standist þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Virðingarfyllst
Leo Smári Gunnarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum