Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. mars 2016 Forsætisráðuneytið

Þátttaka Íslands á 60. fundi Kvennanefndar SÞ sem hefst í dag

Merki 60. fundar kvennanefndarinnar - mynd

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, er komin til New York ásamt íslenskri sendinefnd til að taka þátt í 60. fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (SÞ) sem hefst í dag og stendur til 18. mars. Valdefling kvenna sem mikilvæg forsenda sjálfbærrar þróunar er leiðarstef fundarins.

Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna. Dagskrá Eyglóar Harðardóttur hefst í dag á stuttum fundi með íslensku sendinefndinni kl. 8.30 að staðartíma. Íslenski hópurinn telur 25 manns. Ráðherra ákvað að veita samtals tvær milljónir króna í styrki til að styðja við þátttöku frjálsra félagasamtaka og einnig frummælenda sem taka þátt í fundinum.

Bein útsending frá opnun fundarins

Formleg setning kvennafundarins fer fram í dag kl. 10.00 að staðartíma (kl.14.00 að íslenskum tíma). Hægt verður að fylgjast með opnun 60 fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna á vef UN women.

Á morgun flytur Eygló ávarp fyrir Íslands hönd og mun m.a. segja frá því hvernig íslensk stjórnvöld hafa formgert víðtækt samstarf um aðgerðir til að sporna við ofbeldi, ekki síst heimilisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum. Nánar verður sagt frá þátttöku ráðherra í ýmsum viðburðum kvennanefndarfundarins eftir því sem fundinum vindur fram.

Fjárfesting í jafnrétti kynjanna er allra hagur

Norrænir ráðherrar jafnréttismála efna til fundar þann 16. mars þar sem þeir miðla reynslu og þekkingu Norðurlandaþjóðanna á sviði jafnréttismála og mikilvægi kynjajafnréttis til að stuðla að sjálfbærri þróun samfélaga, hvort sem horft er til menntunar, heilbrigðismála, vinnumála eða félagslegs jöfnuðar. Norræna ráðherranefndin stendur að skipulagi fundarins og dregur fram í fundarboði hvernig reynsla þjóðanna hefur sýnt að fjárfesting í janfrétti kynjanna er allra hagur.

Höldum glugganum opnum

Þann 17. mars stendur Ísland fyrir viðburði á kvennanefndarfundinum sem ber yfirskriftina „Keep the Window Open“ og fjallar um verkefni sem íslensk stjórnvöld hafa sett í forgang til að sporna við ofbeldi í samfélaginu. Þátttakendur verða Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu ásamt Öldu Hrönn Jóhannesdóttur, yfirlögfræðingi hjá embættinu, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur og aðgerðasinni og fulltrúi Stígamóta.

Á vef UN Women er hægt að sjá dagskrá fundarins og fylgjast með fréttum og ýmsum upplýsingum um viðburði og þátttakendur.

Listi yfir íslensku þátttakendurna:

Nafn Stofnun Titill
Eygló Harðardóttir Velferðarráðuneytið Ráðherra
Anna Lilja Gunnarsdóttir Velferðarráðuneytið Ráðuneytisstjóri
Rósa G. Erlingsdóttir Velferðarráðuneytið Sérfræðingur
Ingi Valur Jóhannsson Velferðarráðuneytið Senior Adviser
Matthías Páll Imsland   Aðstmaður ráðherra
Sóley Ragnarsdóttir   maki MPI
Gréta Gunnarsdóttir Utanríkisráðuneytið Sendiherra mannréttindamála
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Political Adviser Ministry of the Interior
Guðrún Ögmundsdóttir  Sérfræðingur á skrifstofu mannréttinda og sveitarfélaga í innanríkisráðuneytinu Ministry of the Interior
Þorsteinn Sæmundsson Alþingi Alþ.maður
María J. Hauksdóttir maki ÞS  
Hafdís Karlsdóttir Soroptimist Int., Iceland  
Sóley Tómasdóttir Ráðhús Reykjavíkur Forseti borgarstjórnar
Dagný Ósk Aradóttir Pind Kvenréttindafélag Íslands  
Katrín Anna Guðmundsd. Kvenréttindafélag Íslands  
Bryndís Ísfold Hlöðversd. Kvenréttindafélag Íslands  
Guðrún Jónsdóttir Stígamót Talskona Stígamóta
Hildur Helga Gísladóttir Kvenfélagasamb.Íslands Framkvæmdastjóri
Kristín Árnadóttir Kvenfélagasamb.Íslands  
Guðrún Ögmundsdóttir UN Women á Íslands Form. landsnefnd.
Inga Dóra Pétursdóttir UN Women á Íslands  
Hanna Eiríksdóttir UN Women á Íslands Herferðarstýra
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir The Nordic Council of Ministers  
Sigríður Björk Guðjónsd Metropolitan Police Chief of Rvk MP
Alda Hrönn Jóhannsdóttir Metropolitan Police Chief Attorney

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum