Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. mars 2016 Dómsmálaráðuneytið

Fjölgað í verkefnisstjórn um heimild fyrir skiptri búsetu barna

Fjölgað hefur verið fulltrúum í verkefnisstjórn innanríkisráðuneytisins sem undirbúa á heimild fyrir skiptri búsetu barna. Bætt hefur verið við tveimur körlum.

Verkefnisstjórnin er nú þannig skipuð:

  • Lilja Borg Viðarsdóttir, sérfræðingur, tilnefnd af innanríkisráðuneyti og leiðir hún einnig verkefnisstjórnina.
  • María Rut Kristinsdóttir, sérfræðingur, tilnefnd af innanríkisráðuneyti.
  • Guðríður Bolladóttir, sérfræðingur, tilnefnd af velferðarráðuneyti.
  • Steinar Örn Steinarsson, sérfræðingur, tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðuneyti.
  • Indriði Björn Ármannsson, lögfræðingur hjá Þjóðskrá Íslands, tilnefndur af Þjóðskrá.
  • Þorsteinn Gunnarsson, lögfræðingur, tilnefndur af innanríkisráðuneyti.

Þeir sem koma vilja á framfæri ábendingum til verkefnisstjórnarinnar geta sent ráðuneytinu erindi á netfangið [email protected].

Sjá nánar hér um hlutverk verkefnisstjórnarinnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum