Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. apríl 2016 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ný reglugerð um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum

Sina

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum.  Markmið reglugerðarinnar er að vernda um· hverfið og heilsu fólks með því að koma í veg fyrir mengun af sinubrennu, öðrum gróðureldum og meðferð elds á víðavangi. Þá er einnig markmið reglugerðarinnar að tryggja öryggi og vernd lífs og eigna.

Reglugerðin kveður á um þær reglur sem gilda um meðferð elds á víðavangi og þá skyldu hvers og eins að gæta ítrustu varkárni við meðferð elds. Sérstaklega er fjallað um sinubrennu, sem er óheimil nema á lögbýlum þar sem stundaður er landbúnaður en hún er einungis heimil í rökstuddum tilgangi í jarðrækt eða búfjárrækt og þá samkvæmt skriflegu leyfi sýslumanns. Einnig þarf leyfi fyrir bálköstum og brennum og er í reglugerðinni fjallað um þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að fá slíkt leyfi.

Reglugerðin er sett með stoð í 7. gr. laga  nr. 40/2015 um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum. 

Reglugerð um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum