Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. maí 2016 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Vinna hafin við skoðun á mögulegri tilnefningu Vatnajökulsþjóðgarðs á heimsminjaskrá UNESCO

Vatnajökulsþjóðgarður
Úr Vatnajökulsþjóðgarði

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur í samvinnu við Illuga Gunnarsson, mennta-og menningarmálaráðherra, sett af stað undirbúning vinnu við að skilgreina, afmarka og afla nauðsynlegra gagna og upplýsinga fyrir næstu tilnefningu náttúruminja á heimsminjaskrá UNESCO.

Skipuð hefur verið að þriggja manna verkefnisstjórn sem í sitja fulltrúar umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Vatnajökulsþjóðgarðs. Verkefni þeirra fyrst í stað er að hefja vinnu við skilgreiningu og afmörkun tilnefningarinnar og setja niður vinnu- og tímaáætlun fyrir verkefnið. Hópurinn mun kalla til nauðsynlega sérfræðinga og fulltrúa stofnana til þess að skýra og afmarka verkefnið.

Mikill áhugi hefur verið á því að tilnefna Vatnajökulsþjóðgarð á heimsminjaskrána og miðast undirbúningsvinnan við að skilgreina og afmarka til hvaða náttúrufyrirbæra tilnefningin tæki til. Ljóst er að rekbeltið, heiti reiturinn undir landinu og eldstöðvakerfi í gosbeltunum ásamt samspili elds og íss verða viðfangsefni tilnefningarinnar. 

Stefnt er að því að verkefnisstjórn skili tillögum til ríkisstjórnarinnar um verkfyrirkomulag og tímaramma í júní og að drög að afmörkun og skilgreiningu tilnefningarinnar verði tilbúin fyrir sumarlok.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum