Hoppa yfir valmynd

Frétt

10. maí 2016 Forsætisráðuneytið

32 milljónir króna í styrki til atvinnumála kvenna

Frá afhendingu styrkja til atvinnumála kvenna 2016 - mynd

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra úthlutaði nýlega 32 milljónum króna í styrki til atvinnumála kvenna. Alls hlutu 33 verkefni styrk í samræmi við niðurstöðu ráðgjafarnefndar sem mat umsóknirnar en alls bárust 219 umsóknir um styrki til verkefna hvaðanæva af landinu.

Verkefnin voru fjölbreytt að venju. Má þar nefna fórnarfóðringu fyrir jarðhitaborholur, þróun vistvænna umbúða í stað plasts og ræktun stofnfruma með nýjum aðferðum. Þessi verkefni hlutu 3 milljónir króna hvert. Af fleiri verkefnum má nefna framleiðslu á lífrænni ánamaðkamold, gerð viðskiptaáætlunar fyrir útgáfu á pólsk- íslensku tímariti, og gerð viðskiptaáætlunar fyrir fræðslu- og fjölskylduspilið Fuglafár.

Með styrkjum sem þessum er stuðlað að aukinni fjölbreytni í atvinnulífinu en fjölmörg ný fyrirtæki hafa litið dagsins ljós sem skapa störf, samfélaginu til hagsbóta. Einnig er styrkveiting sem þessi mikil hvatning fyrir þær sem er ekki síður mikilvæg þegar á hólminn er komið.

Styrkjum til atvinnumála kvenna hefur verið úthlutað frá árinu 1991 og eru ætlaðir konum sem vinna að góðum viðskiptahugmyndum og verkefnum. Skilyrði styrkveitinga eru þau að verkefnin séu í eigu kvenna, stjórnað af þeim og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun. Ekki er nauðsynlegt að vera með starfandi fyrirtæki til að sækja um styrk og því er heimilt að sækja um vegna verkefna á byrjunarstigi en einnig geta þær konur sótt um styrk sem eru að þróa nýjungar í starfandi fyrirtækjum. Unnt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar, vöruþróunar, hönnunar og vegna launakostnaðar en ekki eru veittir styrkir til framkvæmda eða vegna stofnkostnaðar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum