Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. maí 2016 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Nýsköpunarkeppni grunnskóla 2016

Nýsköpunarkeppni grunnskóla (NKG) er hugmyndasamkeppni fyrir nemendur í 5. 6. og 7 bekk í grunnskóla en hún var nú haldin í 24. sinn. Í ár bárust rúmlega 1700 hugmyndir í keppnina en dómnefnd valdi hugmyndir 40 nemenda til þátttöku í úrslitum. Lokahóf keppninnar fór fram sunnudaginn 22. maí í Háskólanum í Reykjavík.

Nemendurnir sem valdir voru til úrslita í keppninni tóku þátt í vinnustofu þar sem þeir fengu tækifæri til þess að útfæra hugmyndir sínar frekar með aðstoð leiðbeinenda frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Að vinnustofunni lokinni var efnt til lokahófs þar sem hugmyndirnar voru til sýnis og viðurkenningar voru veittar.

 

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra afhenti viðurkenningarskjöl ásamt Hvatningarverðlaunum NKG til „ Nýsköpunarkennara grunnskólanna árið 2016.“ Í ár hlaut Álfheiður Ingólfsdóttir úr Sæmundarskóla verðlaunin „fyrir framúrskarandi framlag sitt til eflingar nýsköpunarmenntunar á Íslandi.

Vinningshafar Nýsköpunarkeppni Grunnskóla árið 2016 eru:

1. sæti

  • Hekla Ylja Einarsdóttir í 5. bekk Hofsstaðaskóla, - Baðkarspípari
  • Hrafnhildur Haraldsdóttir og Hafsteinn Yngvi Kolbeinsson í 6. bekk Árbæjarskóla, - Hitaskiltið
  • Guðrún Erlendsdóttir og Mónika Andjani Hneppu í 7. bekk Húsaskóli, - Hneppuhandklæðið

2. sæti

  • Björn Þór Hrafnkelsson í 5. bekk Stóra Vogaskóla, - Gluggaopnari fyrir ketti (MurrinnX)
  • Sonja Ingimundardóttir í 6. bekk Hofsstaðaskóla, - Ofnæmiskynjari
  • Ásthildur Þóra Heimisdóttir í 7. bekk Sæmundarskóli, - Teljandi fótbolti

3. sæti

  • Ásdís Ólafsdóttir í 5. bekk Hofsstaðaskóli, - Morgunverðarskál með halla
  • Óskar Aron Stefánsson og Indriði Ægir Þórarinssson í 6. bekk Varmahlíðarskóli, - Markaskráarappið
  • Sindri Immanúel í 7. bekk Barnaskólinn á Eyrabakkka og Stokkseyri, - Rafknúinn hurðarlokari

Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur tekið við rekstri og framkvæmd Nýsköpunarkeppni grunnskólanna fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis.

Helstu samstarfs- og stuðningsaðilar við Nýsköpunarkeppni grunnskóla eru Arion banki, Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands, Samtök Iðnaðarins, Samtök atvinnulífsins, Samband íslenskra sveitarfélaga, ELKO og IKEA.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum