Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. maí 2016 Heilbrigðisráðuneytið

Þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar hófst í Genf í dag

Dr. Margaret Chan framkvæmdastjóri WHO - mynd

Árlegt þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), hið 69. frá upphafi, hófst í Genf í Sviss í dag. Um 3000 fulltrúar frá öllum aðildarríkjunum sækja þingið sem stendur til 28. maí. Unnt er að fylgjast með þinginu í beinni útsendingu á vef WHO.

WHO starfar innan Sameinuðu þjóðanna og annast samhæfingu aðildarríkjanna á sviði heilbrigðismála. Markmiðið er að stuðla að bættu heilbrigði þjóða, m.a. með markvissri stefnumótun, eflingu þekkingar, heilbrigðisvöktun og viðbrögðum við heilbrigðisógnum af ýmsu tagi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum