Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. júní 2016 Forsætisráðuneytið

54. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

1. Frumvarpsdrög nefndarinnar – úrvinnsla umsagna og athugasemda, annað framhald málsins

2. Önnur mál

Fundargerð

54. fundur – haldinn fimmtudaginn 9. júní 2016, kl. 16.00, í fundarsal forsætisráðuneytis við Hverfisgötu.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Einar Hugi Bjarnason, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir og Valgerður Gunnarsdóttir. Róbert Marshall sótti fundinn að beiðni Bjartrar framtíðar. Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

1. Frumvarpsdrög nefndarinnar – úrvinnsla umsagna og athugasemda, annað framhald málsins

Rætt var um skipulag vinnunnar á næstunni, breytingartillögur í kjölfar samráðsferlis, mögulegar athugasemdir og bókanir nefndarmanna og skil nefndarinnar til forsætisráðherra. 

2.Önnur mál

Drög að fundargerðum fjögurra síðustu fundar (50.-53.), sem sendar voru nefndarmönnum 6. maí sl., lagðar fram og samþykktar án athugasemda. 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:00.                                              

SG ritaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum